Hvað er klám?

Flest tónlistarmyndbönd á MTV teljast til kláms.  Sérstaklega rappið.  Enda flestir leikstjórar þeirra með reynslu úr klámbransanum.  Engin verður fræg söngkona í Ameríku nema fækka fötum og hrista sig eins og súludansmær.

Skil ekki þessa fóbíu gagnvart nekt og kynlífi.  Svona hefst fasisminn.  Fyrst verður klámið bannað og svo ofbeldið.  Næst vafasöm rit og bloggsíður. Treysti því að Alþingi hlægji frumvarpið í kaf og þessi vitleysa gleymist sem fyrst.

Kynslóðaskipti

Þegar ráðherrar ferðast ótt og títt síðustu mánuði kjörtímabilsins þýðir það eitt að þeir vænta þess að verða ekki ráðherrar eftir næstu kosningar. Ögmundur hefur verið einstaklega duglegur síðustu vikurnar.  Flogið til Kína, Indlands og ég veit ekki hvert.

Samhliða ferðalögum sínum hefur hann reynt að troða fram undarlegu frumvarpi sem á að banna streymi kláms inn í landið í gegnum internetið. Eitthvað sem færustu tölvufræðingar heimsins hafa ekki getað fram að þessu.

Fingraför aðstoðarkonu ráðherrans eru öllum ljós á téðu frumvarpi. Halla Gunnarsdóttir virðist hata karlmenn og telja að konur skoði ekki klám.  Ekki frekar  en að konur spili fótbolta.  Vill reyndar svo til að hún var sjálf skæð fótboltakona á árum áður.  Skrítið!

Nú er Steingrímur Joð hættur formennsku.  Guð hjálpi Vinstri-Grænum og landslýð ef Ögmundur býður sig fram og hlýtur meirihluta atkvæða miðaldra og beiskra karla sem harmað hafa hlut sinn í flokknum fram að þessu.

Katrín Jakobsdóttir hefur staðið vaktina eins og hetja sem varaformaður síðasta áratuginn og á skilið að hljóta rússneska kosningu sem næsti formaður Vinstri-Grænna.  Að bjóða sig fram gegn henni væri dónaskapur af verstu gerð.  Vonandi sýna karlarnir í flokknum smá háttvísi og gera unga, gáfaða og glæsilega konu að formanni VG.

Þrammið

Hef þrammað töluvert síðustu sólardaga.  Enda ekki vanþörf á.  Var latur yfir hátíðirnar og áramótin.  Nú er tveggja tíma þramm lágmarkið.  Stefni á fjögurra tíma daglegt rölt í takt við ömmubróður minn sem varð áttræður í gær.

Hvatt er til að fólk finni sér hreyfingu sem það líkar.  Ég elska göngur. Finnst það eðlileg áreynsla undir berum himni með óþrjótandi súrefni. Meika ekki svitastorknar líkamsræktarstöðvar.  Að minnsta kosti ekki alveg strax. Vil ná smá þoli og þyngdartapi áður en ég rek nefið inn í slíkar verksmiðjur.

Annars er ágætis aðstaða í Fossvogsdalnum nálægt Víkingsvellinum fyrir röltara og skokkara til að teygja úr sér.  Er að pæla í að prófa þá aðstöðu betur áður en ég kaupi mér aðgang að stöð.  Þoli ekki þrengsli.