Stjórnarskrárþrasið

Þrefað er um drög að nýrri stjórnarskrá á Alþingi.  Löngu orðið ljóst að frumvarpið verður jarðað í nefnd fram á næsta kjörtímabil og svo endalega grafið.  Ljótt að heyra vegna þess lýðræðilega ferlis sem hefur átt sér stað. Kinnhestur í andlit kjósenda.

En svo má ræða hvort þörf sé á nýrri stjórnarskrá í landi þar sem sjaldan hefur verið farið eftir núverandi (hvað þá öðrum lögum).  Breyting á grunnlögum landsins breytir ekki siðlausu eðli landsmanna.  Helmingur þjóðarinnar ætlar að kjósa hrunflokkana yfir sig í vor í þeirri vonleysu að fá 2007 aftur.

Hér ríkir engin samstaða um að byggja landið upp. Nema fyrir þá ríku. Við aumingjarnir megum éta það sem úti frýs.  Á meðan eyðir þingið síðustu dögum kjörtímabilsins í röfl um stjórnarskrá sem engu máli skiptir.

Óþarfa grimmd

Skinhelgi Eyjamanna gagnvart eiturlyfjum er í besta falli fyndin ef ekki fáranleg.  Í þessu fræknasta sjávarplássi landssins er ekki verið að amast við áfenginu.  Bara einhverjum plöntum sem menn reykja í landlegu.

Og að reka menn umsvifalaust án tækifæris til að útskýra mál sitt eða bæta sig er fáranlegt og lyktar af illgirni þeirra sem völdin hafa.  Þessum ellefu sjómönnum voru ekki einu sinni boðin meðferðarúrræði.

Sjómennskan er krefjandi starf fyrir líkama og sál.  Kostar oft langar fjarverur út á rúmsjó fjarri fjölskyldu og vinum.  Svo ekki sé talað um áhættuna við að stíga öldurnar í víðsjárverðum veðrum.  Slíkt tekur á taugarnar.  Lái þeim hver sem vill að slaka á í landi með jónu í annarri hendi og bjór í hinni.  Hetjur hafsins eiga slíka slökun skilið milli túra.

Áhöfnum sprengjuflugvéla Bandaríkjahers í seinna stríði var leyft að reykja róandi fyrir flugtak.  Helmingslíkur voru á að þeir sneru ekki aftur.  Sjálfur er ég logandi hræddur um líf mitt með Herjólfi milli lands og Eyja.  Gæti aldrei dvalið vikum saman út á ballarhafi án róandi lyfja.

Hreintrúarstefna Eyjamanna gagnvart öðrum vímugjöfum en áfengi er undarleg í samanburði við áralangt áhugaleysi þeirra gagnvart nauðgunum á Þjóðhátíð.  Eru reyndar að bæta sig eins og myndavélakerfi síðustu hátíðar hefur sannað.  Voru samt rosalega tregir og seinir til úrbóta.

En eins og Pírataflokkur Birgittu Jónsdóttur bendir á þá er vímuefnapróf innrás í einkalíf fólks.  Kemur engum við hvað ég reyki eða drekk í frítíma mínum.  Hvað er næst. Munu fulltrúar vinnuveitenda fylgja fólki inn í kjörklefana?  Vinnuveitendum á að nægja að starfsfólk þeirra sé allsgátt á vinnutíma.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/02/07/fridhelgi_einkalifs_sjomanna_brotin/

http://smugan.is/2013/02/vinnslustodin-a-ad-endurskoda-brottrekstur/

Síldarævintýri

Þá vitum við það!  Ekki er ráðlegt að þvera firði.  Þrátt fyrir vitneskjuna á að blæða sex milljónum í vöktun fjarðarins.  Halló!  45 þúsund tonn af síld hafa kafnað þar nú þegar.

Á þessi vakt að koma í veg fyrir frekara tjón?  Lóðsa síldina frá firðinum og aftur út á haf?  Hvernig væri nú nota aurinn til að ljúka verkinu og loka firðinum svo meiri síld villist ekki þar inn í opinn dauðann!  Varla verður fjörðurinn afþveraður úr þessu.

Verður gaman að vita hvar þessar sex milljónir enda.  Sennilega hjá einhverjum gæðingi eða flokksfélagi.  Af hverju biðja fjölmiðlar aldrei um sundurliðun þegar ráðherrar eru að lofa fjármagni út og suður?