Meðafli fulltrúalýðræðis

Ömurlegast við fulltrúalýðræði er hve margir vafasamir karakterar slæðast með hinum fáu góðu inn á Alþingi.  Einn mögulegur í vor er svo sannfærandi verjandi og áberandi í umræðunni að óhætt er að kalla hann talsmann nauðgara og misyndismanna á Íslandi.

Eflaust eðalnáungi sem í gegnum umræðuna er orðinn að fulltrúa þeirra sannfærðu karla sem trúa að nauðgun sé lagatæknilegt atriði. Misskilningur milli aðila.  Smáatriði sem á ekki heima innan veggja dómsala.

http://www.dv.is/leidari/2013/2/6/fadu-ja-hja-naudgaranum/

Segið sögu ykkar!

Umfjöllun Kastljóss á glæpum Karl Vignirs kveikti í þjóðinni. Í kjölfarið fá barnaníðingar sem töldu sig hólpna verðskilið kjaftshögg.  Einn af þeim hleypti reyndar af haglarum sínum að húsi fórnarlambs síns á Eyrarbakka.  Sá er nú í haldi.

Löngu tímabært að hreinsa samfélagið af níðingum sem hafa fengið að vaða uppi undir þagnarskyldi áratugum saman.  Fórnarlömbin fá loksins að rjúfa þögnina og segja sögu sína án þess að vera talin lygarar.

Easy Company

Eflaust er ég eitthvað skrítinn í hugsun en mér finnst asnalegt þegar miðaldra menn á Íslandi sem stunda Cross Fit taka sér nafn fræknustu fallhlífarsveit Bandaríkjahers í seinna stríði; Easy Company, 2nd Battalion, 506th PIR, 101st Airborne.

Sveitin sú er í aðalhlutverki í Band Of Brothers bálki Tom Hanks og Steven Spielberg.  Þessir menn hentu sér út úr DC3 Douglas flugvélum (þristum) yfir Frakklandi í gegnum loftvarnarskothríð og vélbyssur nóttina fyrir D-Day (6. júní 1944).  Og héldu sigurgöngu sinni áfram til stríðsloka.