Samstarf

Ég veit ekki best.  Svo mikið er ljóst.  Þess vegna finnst mér asnalegt að afskrifa álit nær fjörtíu prósent þjóðarinnar sem ætlar sér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í vor.  Þrátt fyrir ríka aðkomu þeirra að hruninu.

Hatur og hefnigirnd færir okkur ekkert áfram.  Sem þjóð verðum við að vinna saman til að krafsa okkur upp úr kreppunni.  Gott og blessað að íhaldið vill ekki viðurkenna neina sök.  Það er þeirra innanbúðarmál.  Þeirra samviska.

Ný forysta Samfylkingarinnar er tilbúin til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Jóhanna af Örk er hætt og gengin í raðir ellilífeyrisþega.  Hefðu Guðbjartur og Oddný verið kosin þá hefði horft öðruvísi við.

Hleypum ekki Framsókn að kjötkötlunum.  Þrátt fyrir að sá flokkur hafði rétt fyrir sér í Icesavedómsmálinu gagnvart EFTA.  Við höfðum nefnilega flest rétt fyrir okkur þvert yfir flokkslínur.

Forgangsröðun

Stundum finnst mér eins og yfirvöld séu að sóa tíma sínum í að eltast við plönturæktendur, bruggara og klámkalla þegar þau ættu að verja tíma sínum í að fanga þá stóru fiska sem ollu hruninu.

Hverjum er ekki sama um fólk sem stundar sjálfsþurftarbúskap og sinnir þörfum sínum á netinu. Ögmundur innanríkisráðherra er heilaþveginn af aðstoðarkonu sinni Höllu Gunnarsdóttur sem hatar karla og þeirra frjálslyndu skoðanir.  Í hennar augum eru allir karlar nauðgarar.

Vinkonur

Einhverju sinni var ég að eltast við stelpu á Þjóðhátíð í Eyjum.  Gekk svo sem allt vel framan af en tók að syrta í álinn þegar vinkonur hennar mættu á svæðið.  Ein þeirra þurfti mikið að velta fyrir sér gömlum vandamálum einmitt þegar allir aðrir voru að skemmta sér konunglega í Dalnum.

Stelpan í sigtinu neyddist til að setjast niður með vinkonu sinni og hlusta á hve heimurinn væri henni ósanngjarn.  Ég reyndi að sýna þeim þolinmæði langt fram eftir nóttu en gafst loks upp.  Komst að þeirri augljósu niðurstöðu að Þjóðhátíð snerist um skemmtun en ekki trúnaðarskeið.

Af hverju eyðileggja stelpur fyrir vinkonum sínum á djamminu?