Kynslóðaskipti

Sjálfur var ég ekki einn af þeim fáu sem kaus nýja forystu Samfylkingarinnar en líst samt ágætlega á kynslóðaskiptin.  Jóhanna var að draga flokkinn niður í síkið með hatri sínu á Sjálfstæðisflokknum sem mun leiða næstu stjórn hvort sem okkur líkar eður ei.

Árni Páll og Katrín geta kannski minnkað sjokkið með því að ganga í eina sæng með hrunflokknum.  Jafnað út græðgina og eftirsjána eftir 2007. Skárra en að Framsókn endurnýji samstarfið og keyri landið endanlega niður til Helvítis með helmingaskiptum og einkavinavæðingu.

Rödd sigrar Latabæ

Eyþór Ingi á líf og fer til Malmö í maí.  Öllum að óvörum atti Solla stirða við hann í stað Birgittu.  Blessuð farsímabörnin voru ekki farin að sofa minnug Latabæjar.  Þau mundu hinsvegar ekki eftir Birgittu.  Voru ekki fædd þegar hún var í Írafár.

Við Íslendingar tökum Júróvisjón alvarlega.  Hér dugir ekkert hálfkák.  Eyþór Ingi er þó vel að sigrinum kominn.  Lögin sjö voru svona jafn leiðinleg og léleg.  Röddin tryggði honum sigurinn.  Við gerum eitthvað gott úr því en sigrum seint í Svíþjóð.

Árið hefst í febrúar

Langur og dimmur janúar að baki.  Hélt að honum myndi aldrei ljúka. Icesave sennilega búið og allt á uppleið samkvæmt ríkisstjórninni.  Vúppí dú!!!  Dreymdi að Árni Páll mun vinna formanninn.  Varla verri martröð en Guðbjartur gufa.

Þjóðin skiptist í „I told you so“ og samningamenn sem segjast enn hafa rétt fyrir sér.  Öll höfum við unnið.  Enginn hefur tapað.  Verstir eru þó þeir sem kannast ekki við að hafa kosið JÁ og eru að slá sér upp með okkur meirihlutanum sem sögðum NEI.  Geta ekki staðið með sannfæringu sinni. Þola ekki að tapa.

Júróvisjónlagið valið á morgun. Vínbúðir munu fyllast og grill dregin undan vetrardúkum. Gott ef sólin mun ekki skína.  Kominn tími til að fagna eftir drungalega ársbyrjun.  Sparka árinu almennilega í gang.