Íslensk þjóð

Íslendingar eru fíklar upp til hópa.  Sést best á könnunum um hvað fólk ætlar að kjósa í vor.  Meira en helmingur ætlar að kjósa hrunflokkana yfir sig vegna þess að núverandi stjórn leyfði þeim ekki að eyða nóg út á reikning.

Allir búnir að gleyma hverjir komu okkur á vonarvöl.  Allt fyrirgefið.  Áfram með smjörið!  Siglum hraðbyri í næsta hrun.  Íslenskri þjóð er ekki viðbjargandi.

Þjóðarvilji virtur að vettugi

Nú er orðið ljóst að stjórnarandstaðan ætlar að halda uppi málþófi í kringum stjórnarskrármálið.  Tylliástæða til að lama þingið.  Okkur lýðnum er fyrir löngu orðið ljóst að þingheimur mun aldrei samþykkja tillögur stjórnlagaráðs.  Þrátt fyrir að þjóðin hafi skipað honum með þjóðaratkvæðagreiðslu að gera svo.

Og þar sem er vitað að þingheimur hlýðir ekki þjóðarvilja, þá er kosning um inngöngu í ESB tómt mál.  Við vitum að engu skiptir hvernig þjóðin kýs. Þingið og /eða ríkisstjórnin mun snúa niðurstöðunni sér í hag.

Formannskjör

formannskjörEinhvern tíma hefði ég kosið formann Samfylkingarinnar.  Ekki lengur.  Er nokkuð sama hvor þeirra taki við af Jóhönnu af Örk.  Í illgirni minni vil ég samt að Árni Páll hafi sigur.

Guðbjartur er búinn að svíkja svo illilega öryrkja, eldri borgara og atvinnulausa.  Og hjúkrunarfræðinga með dæmalausri hækkun á forstjóra spítalanna.  Fari hann og veri.

Ég treysti varlega mönnum sem dreypa aldrei á áfengi.  Þeir hafa einhverja aðra og verri mannlega bresti.  Eitthvað ljótt að fela.