Krumpubónus

Ánægja mín er blandin með tilkomu Bónus í túnfótinn hjá mér.  Reiknaði ekki með að krumpudýrin myndu leggja sjoppuna undir sig.  Hefði getað sagt mér það fyrir fram því bílastæðin eru svo nálægt útidyrunum.  Sem er alveg kjörið fyrir aldrað fólk með stafi, hækjur og göngugrindur.

Hélt að ég myndi aldrei komast í gegnum verslunina í gær. Var allsstaðar blokkeraður af þrennum eldri hjónum sem siluðust áfram um gangana og pössuðu sig á að enginn kæmist fram hjá.  Auðvitað sagði ég ekki neitt eða frekjaðist.  Kann mig þótt óþolinmóður sé.

Þakka þér atvinnuleysi!

Ég er ekki einn af þeim sem harma að hafa misst vinnuna á sínum tíma. Fyrir mig var það hálfgerð blessun.  Kjaftshöggið sem ég þurfti á að halda. Kærkomin hvíld frá lífinu. Var orðinn svo illa haldinn af ranghugmyndum, félagsfælni og kvíða.  Og hélt þeim gangandi með bjórdrykkju.

Peningaleysið leiddi í ljós að mér var viðbjargandi frá ölinu.  Skortur á áreiti veitti mér stundarfrið til að kynnast sjálfum mér á ný.  Ég þekki ekki lengur þennan mann sem ég hafði að geyma fyrir hrun.  Mikið rosalega átti hann bágt!

Er ekki að segja að allt sé núna í himnalagi. Bara að nú þekki ég gjóturnar og kann að forðast þær. Virði ekki lengur viðlits svipina sem fara á stjá þegar skyggja tekur í sálu minni.  Skrifa mig sérhvern dag frá ruglinu sem ratar í kollinn á mér.  Syng í sturtu til að létta huga minn. Fer út að ganga. Geri grín að sjálfum mér.

Fyrir hrun var líf mitt á villigötum þrátt fyrir tilraunir góðra til að stýra mér í rétta átt.  Ég hlustaði ekki og kenndi öðrum um allt.  Var svo blindur á þann þrönga veg sem ég hafði valið mér.  Sá enga sök hjá sjálfum mér.  Allir voru svo vondir við mig.

Þakka þér atvinnuleysi fyrir að bæta líf mitt.  Ég er betri maður fyrir vikið þrátt fyrir að ég óski engum að vera lengi án vinnu.

Formannskosning

„Hvað ert þú að gera núna?“ er stöðluð spurning sem ég fæ þegar ég rekst á gamla vinnufélaga eða kunningja.  Ég er með nokkur svör á lager: „Mæli göturnar“, „Á milli starfa“, „Ætla að klára námið“.

Segi sjaldnast að ég sé einn af þeim langtímaatvinnulausu sem Guðbjartur velferðarráðherra ætlar að sópa undir teppi á næsta kosningaári með loforðaáætlun um 2.200 ný störf handa okkur vesalingunum sem enginn hefur viljað ráða til starfa nú þegar.

Ný störf eru ekki göldruð fram úr loftinu með töfrasprota.  Guðbjartur er hinsvegar í baráttu um formannsembætti.  Verður að gera eitthvað til að sigra Árna Pál.  Samt svolítið seint í rassinn gripið þegar við erum að fara að falla í faðm bæjarfélaganna.

En hvað um það.  Má víst ekki vera of neikvæður.  Auðvitað ber að fagna öllu framtaki til að virkja okkur upp úr sófanum.