Ekki einn á báti

Einhver illa vaknaður rumur lætur dæluna ganga gegn gengi asíuunglinga í anddyrinu á Smáralind og netið fer á hliðina … enn einu sinni.  Ásakanir um rasisma og heimsku gaursins vaða súðum. Eins og náunginn sé eitthvert einangrað og einstakt tilvik á Íslandi.

Manngreyið er bara að lýsa gremju og ótta heillar þjóðar við mögulegri kínverskri innrás inn í landið með Huang Nubo í fararbroddi. Erum ekki öll jafn sátt og Samspillingin við að útlendingar eignist landið og miðin.  Erlend fjárfesting er eitt.  Erlend yfirráð eru annað.

Söngur

Ég syng í sturtu.  Jafnvel stundum yfir uppþvottinum.  Veit ekki hvort gaulið hljómi vel í hlustum annarra.  Kemur mér ekki við.  Syng til að létta lundina. Rétt eins og  hinir svörtu þrælar Suðurríkjanna forðum daga.

Fólk á ekki að skammast sín fyrir að bresta allsgátt í söng.  Söngur er náttúrulegt og ódýrt geðlyf gegn depurð og framtaksleysi.  Til að losa um tilfinningahömlur og erfiðleika í sálarlífinu.

Í æsku hlýddi ég í laumi á mömmu syngja með heimilisstörfunum.  Veit ekki hvort hún vissi af mér.  En mikið söng hún vel með útvarpinu.  Vonandi hef ég erft snefil af röddinni hennar.

Mislögð vorkunn

Veit ekki með þig, en mér finnst stundum eins og að þorri Íslendinga vorkenni þjófum, morðingjum og nauðgurum.  Skrifi slíka glæpi á æskuglöp, ölvun eða mistök.  Greyið maðurinn átti svo erfiða æsku!

Kemur mér ekkert við.  Trúi ekki á afsakanir.  Annað hvort gerðir þú eitthvað eða ekki. Aðstæðurnar, uppeldið eða ölvunin skipta engu máli. Og þá skaltu líka taka afleiðingunum með reisn.  Sitja út dóminn.  Skammast þín.

Trúi ekki á „tabula rasa“.  Að fólk fæðist sem óskrifað blað.  Sumir eru einfaldlega fæddir illir og með skítlegt eðli. Uppeldi og aðstæður skipta þar engu máli.  Útrásarvíkingarnir voru/eru siðblindir upp til hópa.

Best væri að skjóta þá í hnakkann eins og gert er við óða hunda.