Sólað í hringi

Blikkbeljurnar sóla í hringi í leit að betra stæði nær sjúkrahúsinu.  Guð forði þeim frá því að þurfa taka nokkur aukaskref.  Gætu dáið af ofreynslu. Tveir nikotínfíklar hanga við innganginn.

Ég stend fyrir utan og anda að mér fersku súrefni slyddunnar. Tel í mig kjark.  Sannfæri sjálfan mig um að ég eigi afturkvæmt.  Að ég verði ekki lagður inn til frekari rannsókna.

Er með fóbíu fyrir spítölum og sprautunálum.  Fátt hræðist ég meira.  Öll fórnarlömb hálkunnar í anddyrinu vekja hjá mér ugg.  Meika ekki veikt og sært fólk.  Flýti mér í gegn.

Biðstofa sykursjúkra er eins og ættarmót.  Gamlir vinnufélagar af tveimur stöðum eru þarna staddir.  Vissi um annan en hinn ekki.  Ísland er virkilega lítill staður.  Tala of mikið og er allt of hnýsinn.  Hálf skammast mín fyrir framhleypnina.  Kemur mér ekki við.

Háöldruð kona með beinkröm situr með okkur.  Góðvildin skín úr augum hennar.  Minnir mig á Kristínu langömmu.  Þrátt fyrir bogið bak þá harkar hún af sér og leyfir engum að leiða sig milli staða.

Par á áttræðisaldri er þarna líka.  Hann að koma í tékk og hún með til stuðnings.  Ein hjúkkan er frænka hans en hann veit ekki nákvæmlega hvernig þau eru skyld.  Konan hans er varla í rónni fyrr en hún fær það á hreint:

Kona:  Hvernig eruð þið skyld?

Karl:  Það veit ég ekki.

Kona:  Þið hljótið að vera náskyld fyrst að hún heitir sama nafni og móðir þín?

Karl:  Getur vel verið.

Kona:  Viltu ekki vita hvernig þið eruð skyld?

Karl:  Nei, ekkert frekar.

Ég og fleiri karlpungar í biðstofunni glottum ískyggilega með karlinum.  Við skiljum ekki svona forvitni um ættartengsl við ókunnugt fólk. Okkur nægir að hafa hitt viðkomandi á ættarmóti.  Meira þurfum við ekki að vita.

Á ég skilið Thule?

Fyrir þremur mánuðum átti ég svo skilið Thule fyrir að hafa misst nokkur kíló og komið sykrinum og þrýstingnum niður í norm.  Nú er ég ekki svo viss. Stend í stað.  Þrátt fyrir allar löngu gönguferðirnar.

Þó um að gera að falla ekki niður í eitthvert þunglyndi.  Horfa jákvætt á hlutina.  Var nefnilega hræddur um að hafa fitnað eða hækkað í sykri.  Var samt öruggur með þrýstinginn því ég veit að hreyfingin heldur honum niðri.

Nú er bara að spýta í lófana og bæta um betur.  Koma meiri reglu á lífið. Vakna eins og annað fólk á morgnana og halda svo áfram út daginn. Óregla er óholl.  Um að gera að sofa á nóttunni og vaka á daginn.

Hef einnig tekið þá mjög svo erfiðu ákvörðun að hætta að drekka gervigos eins og Coke Light, Coke Zero og Pepsi Max.  Bara eitur þó enginn sykur sé í þeim.  Ég blæs út og er alltaf svangur.  Og get ekki sofnað út af koffeininu.

Loks er það blessuð nartþörfin á kvöldin yfir kassanum.  Poppkorn kemur ekki í staðinn fyrir nammi.  Líkaminn safnar bara vökva og ég fæ bjúgur. Horfi reyndar ekki á kassann, heldur þætti á netinu.  Suss, ekki segja neinum.

Hef haldið aftur af mér upp á síðkastið.  Er kominn með þvílíkt gönguþol. Get varla hætt þegar ég loksins dröslast út um dyrnar heima hjá mér.  Nú verður enginn klukkutími látinn duga.  Tveir tímar minnst á dag.

Hef alltaf fitnað yfir vetrarmánuðina en svo náð skvapinu af mér um sumarið. Má þakka fyrir að halda í horfinu svona skömmu fyrir áramót.  Er árangur í sjálfu sér.

Fangelsi eru fyrir ofbeldismenn

Gruna stundum sjálfan mig um að vera skrítinn eða undarlegan.  Skil til dæmis ekki af hverju fólk er lokað inni bak við lás og slá fyrir að smygla eiturlyfjum til landsins.  Hérna er um einfalt tollalagabrot að ræða.  Slakið aðeins á!

Skil ekki hvernig samfélagið græðir á því að loka einstaklinga inni sem hafa ekki framið ofbeldisbrot, nauðgað eða myrt.  Er ekki beint ókeypis að halda föngum uppi í mat, húsnæði og menntun.  Koma betur að notum með öklaband úti í samfélaginu.  Eða með áminningarörgjörva um fyrri syndir í vegabréfinu sínu.

Refsigleði á að beita gegn þeim sem beita ofbeldi.  Hnefakögglum miðbæjarins, laushentum heimilisfeðrum, nauðgurum og morðingjum. Þjófar eru aumkunarverðir.  Nægir að vara fólk við þeim á netinu.  Þannig missa þeir sitt kúl og allir passa sig á þeim.

Löngu orðið tímabært að taka í gagnið hinn rafræna gapastokk.  Birta myndir og nöfn þjófa og dópsala.  En sleppa því að loka þetta lið inni upp á frítt fæði, menntun og húsnæði á kostnað ríkissins.