Boð og bönn

Boð og bönn fara virkilega í taugarnar á mér.  Orðið „bannað“ gerir mig líkamlega veikan.  Blóðþrýstingurinn rýkur upp úr öllu valdi og ég fæ sting í kviðinn.  Klæjar í húðina.  Fæ kaldan svita.  Breytist loks í græna risann Hulk.

Skil ekki hugsunina á bak við boð og bönn að ofan.  Finnst slíkt svo algjörlega óþarft. Við erum fullorðnar skynsemisverur. Eigum flest að geta tekið skynsamlegar ákvarðanir.  Greint á milli.  Forðast freistingar og annað sem kemur okkur illa.

Einhver okkar munu ávallt falla í freistni fyrir áfengi og fjárhættuspilum.  Boð og bönn koma því miður ekki í veg fyrir slíkt.  Fíknir virða ekki valdboð að ofan.  Róninn sparar bara við sig í matarkaupum þegar áfengisgjaldið hækkar.

Ungur nemur, gamall temur.

Finnst frábært að lesa frásagnir á netinu af gömlum pönkurum sem hafa nælt sér í mun yngri konur.  Gamlar, frægar fyllibyttur og kojukallar sem loksins eru tilbúnir að planta sér í stofusófann og dæsa eftir þunga kvöldmáltíð.

Telja sig himinn höndum hafa tekið eftir áratuga framhjáhald frá fyrri konum og barnsmæðrum.  Fatta svo ekki að nýja, yngri konan stundar sama leik um allan bæ þess fullviss að eiga gamlan og þreyttan maka heima.