Lengra erum við ekki komin

Sumir kynbræðra minna missa bæði þvag og saur þegar femínistar kveða sér hljóðs á netinu.  Fara allir í hnút og vörn.  Bregðast við eins og fávitarnir sem þeir í raun eru og hjóla í konur fyrir að voga sér að vega að feðraveldinu sem þeir vilja viðhalda.

Einhver Kjartan Örn Sigurðsson vildi sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kraganum fyrir næstu þingkosningar. Kvaðst vera talsmaður kvenna því hann ætti fjórar dætur og eiginkonu.  Svo skrifaði hann grein með titlinum Rifið í lóðin.  Setning sem flestir tengja við Egil Gillzenegger kvenhatara og fyrrum (enn) grunaðan nauðgara.  Kjartan komst auðvitað ekki á blað.  Skrítið!

Bæði karlar og konur eru orðin leið á kúgun kvenna í íslensku samfélagi. Slíkt er svo mikil tímaskekkja að það hálfa væri nóg.  Aðeins litlir menn vilja viðhalda feðraveldinu. Sjálfselskir gaurar sem telja sig verða að drottna yfir maka sínum og börnum.  Tilveran snýst í kringum þá og enga aðra.

Ég vil draga þessa djöfla afsíðis og kenna þeim mannasiði með hnefanum. Og þá kann einhver að spyrja: Af hverju ert þú ekki sjálfur í sambandi? – Eflaust er ég ekki nógu drottnandi persónuleiki til að konur heillist að mér. Lengra erum við ekki komin!

Hátíð ljóss og skugga

Hef ákveðið að láta Jólin ekki fara eins mikið í taugarnar á mér eins og áður. Tilgangslaust að berjast á móti hátíð barna og kaupmanna.  Hef komist að því að andúð mín byggist að mestu upp á ógeði mínu á íslenskum jólalögum. Þoli ekki að heyra þau á rásum útvarpsins.

Ár eftir ár hljóma sömu viðbjóðslegu lögin.  Verst þykir mér þegar góð og gild erlend lög hafa fengið íslenskan texta.  Kasta bókstaflega upp þegar mér berst til heyrna slík skemmdarverk. Tek fram að Baggalútur og Sigurður Guðmundsson eru algjörar undantekningar sem hrein unun er að hlýða á fyrir hver Jól.

Í desember hætti ég vanalega að hlusta á íslenskar útvarpsstöðvar og set gamla diska yfir geislann eða plötur undir nálina.  Eða kaupi áskrift að tonlist.is.  Þoli ekki niðurtalninguna að þessum merkingarlausa degi. Hrunið sannaði að hér trúir enginn á Guð.

BANNAÐ!

Forræðishyggja er viðbjóðslegt fyrirbæri.  Að eitthvert fólk úti í bæ vilji setja okkur fullorðnu fólkinu fótinn fyrir dyrnar með lagasetningum á Alþingi.  Við erum ekki lengur börn.  Eigum að geta fótað okkur óstudd fyrst æskan og uppeldið eru að baki.

Siv Friðleifs vill banna sígarettur með því að gera tóbak lyfseðilsskylt.  Eins og einhver læknir fari að skrifa upp á slíkt. Katrín Jakobs kom Fjölmiðlastofu á koppinn til að fylgjast með fjölmiðlum landsins.  Ögmundur Jónasson vill banna fjárhættuspil á netinu og setja á stofn Happdrættisstofu til að fylgjast með.

Hvað er eiginlega að þessu liði?!!!  Má fólk ekki reykja í friði og eyða peningum í spilakassa?  Eða spila póker á netinu?  Verður þá ekki líka lokað á EVE Online?  Af hverju þarf stofnun til að fylgjast með fjölmiðlum.  Er ekki ritfrelsi í landinu?  Alltaf skulu svona „afturhaldskommatittir“ sjá ofsjónir yfir öllu.

Blautir draumar núverandi stjórnar munu sjá til þess að hún nær ekki aftur meirihluta í vor.  Kjósendur sættu sig flestir við niðurskurð og skattahækkanir í kjölfar hrunsins, en ekki að samtímis sé þrengt að frelsi þeirra og réttindum.