Kemur okkur ekki við

Fésbókin er merkilegur vettvangur.  Þar getur fólk fylgst með ættingjum, vinum og kunningjum í dagsins önn.  Skoðað myndir.  Deilt bröndurum, spakmælum og góðum ráðum.  Leiðinlegast finnst mér þó þegar sannfært (heilaþvegið) fólk fyllir miðilinn af skoðunum sínum á trú- og stjórnmálum.

Opna varla Facebook þessa dagana án þess að sjá áróður frá vinum Palestínu eða zíonistum.  Hvað kemur okkur þessi endalausa deila við?  Við erum Íslendingar.  Ekki arabar eða gyðingar að slást á sömu þúfunni í Miðausturlöndum.

Við þurfum ekkert að elta Obama og hans lið í stuðningi þeirra við Ísrael. Hér búa ekki tugþúsundir gyðinga.  Við þurfum ekki heldur að styðja Palestínu.  Hér er enginn ráðandi hópur múslima.

Í sannleika sagt höfum við ekkert um þetta mál að segja upp á frosinni eyju á miðju Atlantshafi.  Fólki er slátrað á hverjum degi úti í hinum stóra heimi án þess að við fáum nokkuð við það ráðið.  Síst af öllu sæl og södd sitjandi fyrir framan tölvuskjáinn.  Full af megapizzu og réttlátri reiði.

Enginn er saklaus

Flott hjá Bylgju að telja það ekki nauðsynlegt að fyrirgefa kvölurum sínum fyrir eineltið. Hún rakti ofbeldissöguna í Ísland í dag á Stöð 2. Hvers vegna þurfa fórnarlömbin alltaf að rétta fram hinn vangann.  Gerendurnir eiga slíkt ekki skilið.  Jafnvel þó þeir hafi sjálfir átt bágt í æsku.

Við tökum flest andköf þegar við heyrum sögur eins og hennar Bylgju. Skiljum ekki í grimmdinni hjá börnunum.  Höfum gleymt að við stunduðum sjálf einelti í æsku í mismiklu magni.  Stundum í hóp, stundum einsömul.

Man eftir jafnaldra sem var í nokkra mánuði í sama grunnskóla.  Settur á borðið okkar án þess að við værum spurðir álits.  Átti eitthvað bágt.  Gruna að hann hafi verið með snert af einhverfu eða asbergers án þess að hafa verið greindur.

Uppfullur af gremju barði ég í borðið og fór ekkert í felur með óánægju mína að þessum undarlega gaur var komið fyrir hjá okkur en ekki á hinu strákaborðinu.  Fannst okkur vera sýnd óvirðing með því að vera settir í sama flokk og hann.  Viðkvæmnin og gelgjan var að gera út af við mig.

Verður alltaf hugsað til stráksins þegar einelti ber á góma í fjölmiðlum.  Hve illa ég kom fram við hann í stað þess að sýna honum vinarhót.  Greyið ógnaði einhverju ímynduðu jafnvægi og ég lagði hann í einelti með því að hunsa hann og útiloka.

Gerir glæpinn enn verri að ég hafði sjálfur lent í smá einelti fyrr á skólagöngunni.  Hefði átt að vita betur.  Ekki fer ég fram á fyrirgefningu frá honum.  Á hana ekki skilið.

Skjótt skipast veður í lofti

Helgarstormurinn bjargaði Landsbjörgu frá umræðu um gjaldeyrissukk framkvæmdastjórans.  Metsala er á „hjálparkallinum“.  Enda eru Íslendingar hálfvitar upp til hópa sem nenna hvorki að ganga frá heimilum sínum fyrir óveður né drösla GPS-tækjum með sér á rjúpnaveiðar.

Fellibylurinn Sandy virðist einnig, blessunarlega, ætla að gera gæfumuninn fyrir sitjandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama.  Vinsældir hans jukust til muna vegna framgöngu alríkisstjórnarinnar í kjölfar fellibylsins.  Hann sparkaði í rassinn á embættisfólki og sætti sig ekki við neinar afsakanir. Fórnarlömbum skyldi hjálpað umsvifalaust án málalenginga.

Enn er samt mjótt á mununum á milli Obama og Romney.  Spennandi kosninganótt framundan annað kvöld.  Allt getur gerst.