Göngugleðin

Haustið herjar á landann og vetur nálgast.  Enn auðveldara fyrir hlussu eins og mig að þramma eða hjóla á milli staða án þess að deyja úr hita.  Kvíði þó snjónum.  Þá fara göngutúrarnir að taka í bakið.

Hef reyndar meiri áhyggjur af mokstri bæjarins á gangstéttunum.  Hefur ekki staðið sem skyldi undanfarna vetur.  Moksturinn er mun betri í Reykjavík.  Þar er jafnvel mokað um helgar.  Í Kópavogi kannski annan eða þriðja dag ofankomu.  Eða bara alls ekki.

Göngutúrarnir virðast vera að virka hjá mér.  Kílóin leka smá saman af mér. Enn hraðar þegar ég stend mig í mataræðinu samhliða hreyfingunni.  Hef það ekki í mér að kaupa kort á líkamsræktarstöð.  Myndi aldrei mæta.  Get ekki hreyft mig í síldartunnu innan um fullt af öðru sveittu fólki.

Er líka svo gaman að þramma undir beru lofti.  Fá súrefni í lungum.  Verða smá veðurbarinn.  Við erum ekki gerð fyrir svona mikla inniveru.  Bíll, hús, bíll, hús.  Bifreiðin er vetrarklæðnaður íslenska borgarbúans.  66° Norður og Cintamani eru bara tískufatnaður.

Ég varð þeirri gæfu aðnjótandi að vera blaðberi frá barnæsku fram á unglingsár.  Í öllum veðrum.  Aldrei kom til greina að sleppa burðinum.  Var ekki inn í myndinni. Áskrifendur skyldu fá blaðið fyrir klukkan sjö sérhvern morgun.  Hjá mér fengu þeir Moggann fyrir klukkan hálf sjö í síðasta lagi.

Þarna er grunnurinn að göngugleðinni.  Um leið og ég náði þolinu aftur upp eru göngur ekkert mál.  Frá A til B.  Fjölbreyttar leiðir.  Útvarp í eyrað og málið er dautt. Skítt með allt fólkið sem missir stjórn á bílunum sínum við að sjá mig arka  framhjá.

Gæludýr

Ég skil ekki fólk sem fær sér hund eða kött en nennir svo ekki að hugsa um dýrið. Fer í vikuferðalag og skilur greyið eftir með einn dall af þurrmat og annan með vatni.  Skilur svo ekki af hverju dýraverndaryfirvöld hafa fjarlægt dýrið þegar þau loks skila sér heim.

Gæludýr þurfa umönnun rétt eins og börn.  Treysta algjörlega á eiganda sinn um allt.  Sjálfur ólst ég upp með hundum og köttum og sé því hvernig dýrum líður í umsjá eigenda sinna.  Sum þeirra myndu vilja vera annars staðar.  Ekki er öllum gefið að halda gæludýr.

Myndi vilja vera með kisu en má það ekki.  Leigusalinn ræður.  Klappa því bara þrettán ára læðunni hennar mömmu við tækifæri.  Og köttum á förnum vegi sem kjá sig utan í mig.  Kisur eru merkilegir einstaklingar.

Þriggja mánaða skjól

Gildistöku lyfjalaga hefur verið frestað fram til 1. janúar 2013.  Að minnsta kosti þeim hluta sem kveður á um greiðsluþáttöku sjúklinga í lyfjakostnaði. Þurfum því ekki að greiða fullt verð í byrjun og svo stiglækkandi eins og frumvarpið segir til um næstu þrjá mánuði.

Sem er gott því að öryrkjar, lífeyrisþegar og atvinnuleysingjar munu fara á hausinn við að greiða fullt verð í byrjum hvers árs fyrir lyfin sín.  Þetta vita stjórnvöld og fresta því gildistökunni undir því yfirskyni að meiri tíma og fé þurfi til að samræma kerfi stofnana.

Til hvers að breyta kerfinu yfirleitt.  Ekki til að spara segir Guðbjartur „ég-lofa-upp-í-ermina-á-mér“ Hannesson velferðarráðherra. Heldur til að gera það skilvirkara og sanngjarnara.  Fyrir hvern?  Fyrir krabbameinssjúka sem munu fyrst núna þurfa að punga út fúlgum af engum ráðstöfunartekjum?

Þoli ekki þegar lagabreytingar eru sykurhúðaðar með lygi.  Auðvitað er markmiðið að minnka kostnað ríkissins og auka greiðsluþáttöku aumingjanna sem sárlega þurfa á lyfjunum að halda.

Af hverju sendir Guðbjartur ekki bara einnota skammbyssur til okkar svo við getum skotið okkur í hausinn, því við verðum að velja á milli þess að deyja úr hungri eða södd en án lífsnauðsynlegrar lyfjagjafar?