Háttvísi fyrri tíma

Sjálfur er ég ekki enn orðinn fertugur en finnst samt eins og áður fyrr hafi tíðkast mun meiri háttvísi í strætó.  Man að allir farþegar sátu með fætur á gólfinu.  Unglingar og börn viku sæti fyrir eldri borgurum og konum sem áttu von á sér.

Þögnin er mér þó minnistæðust.  Fátítt að nokkur hlaut angur af öðrum sem ræddu saman í hálfum hljóðum í hvors eyra.  Nú öskra allir sem mest þeir mega með gemsana á lofti og fætur upp í sætum og skeyta lítt um þreytta samfarþega á leið heim úr vinnu.

Enda eru strætisvagnar einu staðirnir þar sem ég fæ enn kvíðaköst. Tuttugu tonna blikkbeljur með alla glugga lokaða, snarruglaða farþega og misjafna bílstjóra sem stöðva kannski við mannlausar biðstöðvar.  Ekki alveg mitt uppáhald.

Verð að hafa meiri stjórn á aðstæðum.  Þess vegna geng ég og hjóla á milli staða.

Ávísun á fordrykk

Hef stundum pælt í því þegar ég hef rennt yfir þéttsetnar myndasíður af opnunum og frumsýningum í blöðunum og á netinu hvað fólk þurfi til brunns að bera svo það fái boðskort á slíka viðburði.

Kannski fær það bara SMS eða tölvupóst.  Eða mætir bara óboðið á staðinn því það telur sig svo merkilegan pappír. Fínt að fá gefins fordrykki fyrir sukk kvöldsins.  Sennilega er skilyrði að vera heimilisfastur í hverfi 101 í Reykjavík.

Skilanefndasjálftakan

Vogunarsjóðir eru að kaupa upp líkin af gömlu bönkunum fyrir slikk og græða á tá og fingri með því að rukka okkur lánþegana upp í rassgötin. Rýmið fyrir afskriftir er þó vítt og galopið.  Sérstaklega fyrir þá sem bárust á fyrir hrun.

Þess vegna þurfum við vesalingarnir ekki að skammast okkar fyrir að skulda.  Sjóðirnir mega alveg við því að bíða aðeins lengur eftir greiðslum eða einfaldlega verða af þeim fyrir fullt og allt.

Hljóta að geta það fyrst að skilanefndirnar á þeirra vegum mega maka krókinn að vild án þess að sjóðirnir kvarta.  Skammta sér svo ríkuleg laun að fólkið í landinu roðnar.  Og fresta lausn gömlu bankanna eins lengi og þau vilja til að geta fitnað lengur eins og púkinn á fjósbitanum.

Mikið vona ég að spádómurinn úr Back To The Future II rætist þar sem lögfræðingar hafa verið lagðir niður árið 2015.  Mun skilvirkara og sanngjarnara kerfi fyrir okkur flest.