Hlæjum að feita gaurnum!

Sífellt fjör þegar ég fer á milli staða með minn offituskrokk.  Fólk er ekki vant að sjá tæplega hundrað og fjörtíu kílóa flykki mjakast á milli staða.  Hvað þá rösklega eins og ég geri núorðið.

Aðallega ungar konur á þrítugsaldri benda hlæjandi á mig úr bílum sem aka framhjá.  Í gær öskruðu þó fjórir tíu ára gaurar óatkvæðisorðum á eftir mér. Einn af þeim elti mig þegar ég sýndi engin viðbrögð og reyndi að fá mig til að slást.  Ég hugleiddi um stund að senda hann í götuna.

Fólk virðist ekki fatta að hrætt dýr bítur frá sér.  Ég er friðsemdarmaður að eðlisfari en get orðið reiður þegar mér finnst gengið á minn hlut. Ræð stundum ekki við bræðina sem blossar skyndilega upp.

Ég ætti kannski að láta það eftir mér að leggja hnefann í andlitið á fólki sem telur það til réttinda sinna að gera grín að mér vegna offitu minnar.  Af hverju ætti ég að sætta mig við svona viðmót?

Til hvers að hanga hér?

Stundum á síðkvöldum gæli ég við þá hugsun að koma mér af þessum guðsvolaða kletti.  Bara ef ég ætti pening fyrir flugfari af skerinu, þá yrði allt gott á ný.  Hér er ekkert að breytast eftir hrunið.  Spillingin heldur bara áfram að margfaldast.

Mér nægir að fylgjast með samlöndum mínum í umferðinni eða matvörubúðum til að sannfærast um að hér er ekkert að fara breytast til batnaðar.  Þjóð mín er upp til hópa siðlaus og spillt.  Hundheiðin og höll undir kúgun fjórflokksins.

Planið er að safna fyrir one-way-ticket frá Djöflaeyjunni.  Nenni þessu rugli ekki lengur!  Nenni ekki lengur að þiggja æ minni ölmusu úr hendi ríkissins því enginn vill ráða mig í vinnu.  Þrjú ár af niðurlægingu er nægur skammtur.