Með silfurskeið í munni

Hin íslenska þjóð hefur lengi verið svolítið stolt af því að vera hálf amerísk í hugsun á móti hinni norrænu velferð.  Við þykjumst fagna frelsi af hvers kyns tagi en seljum samt enn áfengi á okurverði úr þar til gerðum ríkiseinkasölum.

Annar angi af ameríkuást þjóðarinnar er elska á heimsku fólki.  Fáviska virðist vera talin til dyggða hjá mörgu láglaunafólki sem þrælar myrkranna á milli en kýs samt Sjálfstæðisflokkinn í veikri von um bætt kjör út á lygarnar sem þeim er lofað fyrir kosningar.

Hetjan þeirra er hinn nautheimski silfurskeiðardrengur Engeyjarættarinnar Bjarni Benediktsson formaður flokksins.  Rétt eins og vitgrannir Republikanar sem éta upp heimskuna sem vellur út úr Mitt Romney, þá er vitleysan frá Bjarna boðorð kjósenda íhaldsins.

Hvet fólk til að líta við á http://althingisvaktin.wordpress.com/

Föðurbetrungur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknar má eiga að hann fer ekki leynt með ástæðu þess að hann ætlar að bjóða sig fram í Norðausturkjördæmi.  Að þar séu spennandi tímar framundan með opnun norðurleiðarinnar í siglingum og olíuleit.

Eins og faðir sinn forðum með Kögun ætlar sonurinn að sölsa undir sig þau tækifæri sem Austfirðingum mögulega bjóðast með umskipunarhöfn og þjónustu við olíuleitendur. Ætlar að taka Halldór Ásgrímsson á þetta, en hann smíðaði kvótakerfið fyrir fjölskylduútgerðina sína á Höfn.

Spurning hvort að Sigmundur sé genginn Huang Nubo á hönd og ætli sér að verða kínverskur kvislingur austur á Grímsstöðum.  Sennilega best fyrir Framsókn að losa sig sem fyrst við þennan pabbastrák og kjósa Höskuld sem formann.

Talið upp að tíu

Netið er lifandi miðill sem póstar athugasemdum fólks samstundis í kringum hnöttinn. Við Íslendingar ætlum seint að kveikja á þessari staðreynd. Athugasemdakerfi dv.is er gott dæmi.  Fúkyrðaflaumurinn og hatrið sem þar birtist dag hvern gæti knúið áfram orkuver.

Sjálfur er ég engin undantekning.  Hef drullað svoleiðis upp á bak mér með vanhugsuðum athugasemdum um menn og málefni.  Eyði þeim vanalega daginn eftir núorðið.  Eða einfaldlega tel upp að tíu og sleppi því að leggja orð í belg.  Oft má satt kyrrt liggja.