Dónast í táningum

Netið logar vegna verkstjóra sem var að perrast í unglingsstúlkum í Árborg. Fimm ár skilja hann að tvítugan og stelpurnar fimmtán ára.  Glæpur hans fólst í að segja digurbarkalegar rekkjusögur af sjálfum sér og vinum sínum eftir hverja helgi.

Auðvitað átti hann að halda kjafti. Viðbrögð bæjarfélagsins eru hinsvegar sorglegri.  Fóru í vörn og sökuðu stelpurnar um leti og óhlýðni.  Þess vegna hefði hann dónast í þeim.  Þvílíkir andskotans fávitar!

Man eftir fýr sem sagði okkur strákunum í unglingavinnunni sögur í kaffitímum.  Okkur gaurunum fannst þetta bara fyndið þá.  Er nokkuð viss um að hann hafi hallast í báðar áttir og fengið út úr því að klæmast við táningspilta.  Kynferðisleg áreitni varð ekki til fyrr en löngu seinna.

Eins man ég eftir verkstjóra um tvítugt sem átti í erfiðleikum vegna ásóknar stúlkna í flokknum hans.  Þær létu hann ekki í friði með daðri og áreynslum. Á þessum tíma hefði hann bara verið hleginn út af skrifstofu yfirboðara síns, hefði hann kvartað undan stelpunum.

Dónaskapur brýst fram í ýmsum myndum.

Höfðinu stungið í sandinn

Spara á 1.8 milljarða með því að fleygja fólki út af atvinnuleysisskrá en samt afla 3.3 milljarða aukalega með hækkun tryggingagjalds á fyrirtæki í landinu. Monta sig svo af ört minnkandi atvinnuleysi meðan bæjarfélögin og vinnuveitendur blæða.

Greinilega kosningavetur framundan.  Nú skal bókhaldið fegrað og kjósendum villt um sýn.   Skattgreiðendur sleppa ekki við kostnaðinn þó honum sé velt yfir á sveitarfélögin og atvinnurekendur.

Langtímaatvinnulausir hverfa ekki með því að við séum færð milli dálka í bókhaldinu.  Óskhyggjan ein skapar ekki störf handa okkur.  Noregur tekur ekki endalaust við fólki.  Síst af öllu ófaglærðum.

Bandaríki Evrópu verða aldrei

Ha-Joon Chang hagfræðingur og gestur í Silfri Egils kom inn á mínar helstu efasemdir varðandi Evrópusambandið.  Þar ríkir engin sameiginleg þjóðarvitund eins og í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Í Ameríku tekur alríkið á sig verstu höggin sem California þarf að þola.  Í Evrópu er Grikkland sett í skammarkrókinn og skikkað til að draga eitt saman seglin.  Evrópa verður aldrei Norður-Ameríka.  Þar skilja að tvær aldir og tvö stríð.  Sagan sjálf.