Árátturöskun

OCD (Obsessive–compulsive disorder) er alvarlegur geðsjúkdómur í sinni fyllstu mynd.  Þarf þá að halda honum niðri með lyfjum og/eða samtalsmeðferð.  Mörg okkar berum svipuð einkenni áráttuhegðunar en erum innan markanna.

Til að mynda stunda ég handþvott af miklum þrótti. Þoli ekki að finna lykt af höndunum mínum.  Tékka fimm sinnum eða oftar hvort kveikt sé á eldavélinni áður en ég yfirgef heimilið. Nægir þá ekki að skoða snerlana heldur verð ég einnig að strjúka yfir hellurnar og ofnhurðina.  Sama gildir um útihurðina.  Tékka margsinnis á henni.

Pennar og skrifblokkir veita mér öryggi.  Þau eru að finna í öllum herbergjum heima hjá mér nema á salerninu.  Ég get ekki gengið inn í bókabúð án þess að kaupa penna.  Þess vegna forðast ég slíkar verslanir.

Og núna skil ég af hverju ég skráði mig aftur og aftur til náms við Háskóla Íslands í sagnfræði án þess að ljúka nema einu og einu námskeiði eftir atvikum. Að vera skráður veitti mér öryggistilfinningu.  Staðfestingu á að ég væri á uppleið í lífinu…þó svo væri ekki í raun og veru.

Viðhorfsbreyting

Veit ekki hvað er að gerast með mig.  Er byrjaður að hjóla allar mínar ferðir og fara í göngutúra þar fyrir utan.  Kominn með ógeð á unnum matvörum og farinn að girnast grænmeti og ávexti; spriklandi fisk úr hafi og ferskar kjúklingabringur.

Drakk vonandi minn síðasta sopa af gervikóla nýlega (Coke light). Bara viðbjóður og vond meðferð á vatni.  Fann hvernig blóðþrýstingurinn jókst ásamt ásókn í sætan mat með hverjum sopa.  Sykur er ekki eina eitrið!

Rétt fyrir fertugt fatta ég djókinn. Að maturinn hennar langömmu henti best ofan í belginn á mér.  Að borða rétt er ekkert dýrara en að versla inn fullt af næringarlausu drasli.  Rétt mataræði krefst smá skynsemi og skipulagningar.  Og járnaga.

Loksins ná orð læknisins til mín.  Loksins geri ég mér grein fyrir alvöru málsins. Rosalega þurfti ég að verða gamall til að öðlast lágmarksþroska.  Má víst telja mig heppinn því sumir eru átján ára til dauðadags.

Væntingarhelgin

Þá er hin árlega Sódómuhelgi hafin á landinu kalda. Tugþúsundir ferðalanga hrúgast saman á fáeina fermetra með allt of miklar væntingar innanbrjósts.  Nú skal djammað fyrir allan peninginn!

Drukkið og riðið fram á mánudag þegar hversdagsleikinn tekur aftur við og boðar komu haustsins með Gleðigöngu og Menningarnótt.

Sem er gott og blessað ef allir væru samþykkir.  Svo er nú ekki alltaf.  Rándýrin bíða ekki einu sinni eftir NEI.  Bíða bara færis í myrkrinu og láta til skarar skríða þegar einhver skilur sig frá hjörðinni.

Spurning hvort Bleikir fílar geta komið í veg fyrir sálarmorð í Herjólfsdal eða eru þeir bara sölubrella Þjóðhátíðarnefndar? Lausnin er að ferðast um í hópum. Aldrei fara ein(n) á salernið eða upp í tjald.