Alltaf sama sorgarlesningin blessaður álagningarseðillinn. Skil ekkert í mér að skoða svona leiðindi. Greiði glaður fleiri og betri rými fyrir aldraða en sé eftir hverri krónu sem fer í útvarpsgjaldið.
Enda skila þeir fjármunir sér alls ekki allir upp í Efstaleiti til Páls útvarpsstjóra. Ríkið hirðir drjúgan skerf af því í annað sukk. Restinni er eytt í drasl eins og Andra á flandri og fólkinu seld sú lygi að maðurinn sé fyndinn. Er bara ekkert annað í boði.
Ekki er Flikk flakkið hennar Gunnu Dísar skárra. Og morgunsamvinna þeirra á Rás 2 orðin ansi þreytt. Farið nú að hætta þessu! Gæðamunurinn hefur sést svo vel þessa vikuna meðan vinirnir Helga Braga og Steinn Ármann hafa leyst þau af hólmi.
Ég heimta skárri dagskrá fyrir aurinn minn!