Ljótt er það! Sæmilegt veður helgina fyrir versló táknar bara eitt: að það mun rigna eldi og brennisteini á Þjóðhátíðina í Eyjum. Nei, ég segi svona. Vonandi ekki því þá fer ÍBV á hausinn. Drullumallið á Ísafirði lifir hinsvegar af öll veður enda nóg að eiga bíldruslu til að komast þangað.
Djöfullega dýrt inn á lokadjammið í Eyjum. Tíuþúsund kall, takk fyrir! Held að það sé laust í dallinn seinnipartinn frá Landeyjum og tólf tímum seinna klukkan fjögur um nóttina til Landeyja. Eins gott að djamma hratt og drepast ekki. Annars kemst viðkomandi ekki upp á land fyrr en á þriðjudag … í fyrsta lagi.
Æ, rosalega er gott að vera orðinn gamall og lúinn og búinn með sukkkvótann.