Útlendingastofnun er stórmerkilegt fyrirbæri. Þar innan borðs virðist starfa fólk sem er fullt af þvermóðsku og hatri gegn asísku fólki sem vill sameinast fjölskyldum sínum hérlendis.
Þau gera allt í sínu valdi til að valda þessu fólki sem mestum miska og sárindum. Vitna iðulega til einhverrar lagasetningar og reka svo fólk úr landi. Aldrei reynt að rétta því hjálparhönd. Bara sagt þvert NEI og þar við situr.
Samt dælir þessi stofnun inn flugförmum af karlkyns aröbum sem eiga fátt sameiginlegt með okkur þegar kemur að stjórnmálum, trúmálum eða menningu. Karlrembur frá helvíti sem skilja ekki að dætur þeirra geti orðið ástfangnar af vestrænum mönnum.
Fjölmenning er draumsýn vinstrifólks á Norðurlöndum. Að þjóðarbrotin sameinist einn daginn og láti af erjum sínum. Engin Evrópuþjóð vill í raun og veru fá strangtrúaða múslima frá miðöldum inn í samfélagið sitt. Pólítísk rétthugsun bannar okkur að viðurkenna það. Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.