Heimska þjóð

Meira en helmingur þjóðarinnar eru hálfvitar upp til hópa. Slefandi aumingjar sem kjósa aftur og aftur yfir sig tóma fávita og forseta sem neitar að fara á ellilaun.

Sama pakk styður heilshugar að erindreki kínverska kommúnistaflokksins eignist 3% landsins í gegnum ömurlegan leigusamning við gráðuga sveitalarfa fyrir 25 milljónir á ári næstu 40 árin með möguleika á framlengingu = ígildi eignarréttar. Þarna verður stofnað annað Hong Kong með girðingum og vopnuðum vörðum. Sannið þig til!

Við virðumst alltaf velja rangt þegar rétt blasir við okkur.  Fyrir seinna stríð veðjuðu skuggalega margir á Þýskaland og settu upp hundshaus þegar Bretar og Bandaríkjamenn tóku að sér vernd landsins.

Við létum forsetafíflið plata okkur til að kjósa gegn Icesave III sem var bara nokkuð sanngjarn samningur. Nú hangir yfir okkur mögulegur dómur frá EFTA sem mun setja okkur endanlega á hausinn.  Allt vegna þess að við erum vitleysingar upp til hópa.

Í næstu Alþingiskosningum blasir við að meira en helmingur þjóðarinnar mun kjósa íhald og fjósafasista sem þá taka aftur við stjórnartaumum landsins. Nýtt hrun blasir við en okkur er alveg sama meðan við getum endurnýjað bílinn og grillið og farið í sólarlandarferð.

Nauðgað í Dalnum

Eyjamenn eru sérstakur þjóðflokkur sem þolir illa afskiptasemi frá stóru eyjunni í norðri. Þess vegna stofna þau bara sinn eigin forvarnarhóp gegn nauðgunum á Þjóðhátíð og kalla hann „Bleika fílinn“.

Stígamót fagna frumkvæðinu þrátt fyrir að mega ekki sjálfar stíga fæti inn í Herjólfsdal vegna gamals misskilnings milli þeirra og Þjóðhátíðarnefndar sem vill helst ekki tilkynna kynferðisbrotin fyrr en eftir Verslunarmannahelgi. Fjöldi fíkniefnabrota og pústrar manna á milli fá þó daglega yfir hátíðina að leka til fjölmiðla frá lögreglunni í Eyjum.

Persónulega þótti mér sjálfboðaliðagæsla ungliða hjálparsveitanna hálfgert prump. Þau þóttust sinna gæslu yfir helgina gegn einu djammkvöldi.  Gengu um í hópum étandi popp en gerðu ekki rassgat þegar maður leitaði til þeirra.  Betra var að spjalla við sjálfa lögregluna í dalnum.  Kannski er þetta breytt núna.  Hef ekki farið síðan árið 2003 til Eyja.

Stígamótskonurnar hlustuðu þó þegar maður benti á stúlkur og stráka sem voru við það að drepast áfengisdauða, eða voru þá þegar dauð, og sóttu þau þeim til verndar. Vonandi gerir Bleiki fíllinn hið sama.  Ungliðarnir hristu bara hausinn þegar ég bað þau um að sinna stelpu einni sem var illa á sig komin vegna drykkju eitt árið fyrir utan salernin.

Hrægammar biðu álengdar eftir að ég færi í burtu sem ég gerði ekki fyrr en mér tókst að vekja hana með vatnssopa og fá vinkonu hennar til að fylgja henni í tjaldið þeirra.  Hlýt að vera samkynhneigður í augum margra fyrst að ég skil ekki kikkið við að nauðga áfengisdauðri stúlku á útihátíð.  Þær eru nefnilega undir niðri að biðja um það samkvæmt hrægömmunum.

Femínistar búa til karlrembur

Þegar Þykki og konan hans fengu nauðgunarkæru framan í sig, sem nú hefur verið felld niður, þá var ég meira en lítið til í að trúa að hann væri nauðgari inn við beinið.  Gekk heykvíslaliðinu á hönd og heimtaði blóð. Vegna eigin fordóma gagnvart manninum.

Gillz fer ekki í neinar grafgötur með að hann og kærastan séu fyrir þrennu og að slíkt hafi farið fram þetta kvöld milli þeirra og stúlkunnar sem kærði þau. Fjölbreytni í kynlífi er ekki ólögleg.  Kynlífs er einkamál hvers og eins.

Getur verið að eitthvað sé til í yfirlýsingu Egils um að öfl honum andsnúin hafi fengið stúlkuna til að kæra þau parið fyrir nauðgun. Kannski í þynnku og móral yfir reynslunni og vegna jafningjaþrýstings því svona hegðun geti ekki verið eðlileg fyrir 18 ára menntaskólastúlku.  Að þrennt sé í ástarleik saman.

Sá nýlega ljósmynd af Gillzenegger ásamt Audda Blö á Benidorm. Nornaveiðar femínista hafa greinilega tekið sinn toll á karlgreyinu.  Hefur bætt á sig og virðist hálf vansæll.  Enda búið að hafa af honum æruna í fjöl- og netmiðlum.  Og lifibrauðið.

Allt vegna þess að hann lét nokkur miður vel valin orð falla á netinu og í bókum sínum sem féllu femínistum ekki í geð.  Síðan þá hefur hann verið hundeltur af þeim svo bjarga megi komandi kynslóðum karlmanna frá boðskap hans. Pólítísk rétthugsun í hnotskurn.

Femínískar mæður skilja ekki þá staðreynd að þær sjálfar ala upp karlrembuna í sonum sínum.  Ekki feðurnir eða fyrirmyndirnar.  Þær einar með því að setja synina upp á stall og þjóna þeim eins og ambáttir fram til fullorðinsára.  Hvaða eiginkona getur keppt við slíkt dekur?