Nauðgun / Morð

Fjórir andskotar sáust á hlaupum frá bakhlið Kjörgarðs og voru handteknir, yfirheyrðir og sleppt. Fórnarlambið ætlar ekki að leggja fram kæru. Allt hið undarlegasta mál.

Af hverju þarf fórnarlamb morðs ekki að leggja fram kæru til að brotamaður hljóti refsingu, meðan þeim sem er nauðgað eiga engan möguleika á réttlæti nema að leggja sjálfar fram kæru?

Af hverju nennir saksóknari ekki að hjóla í nauðgara án kæru? Sönnunarbyrðin er sú sama og í morðmálum. Orð gegn orði. Líkindi út frá fyrri samskiptum. Vefsýni. Rannsóknarvinna.

Sennilega ráða fordómar ferð. Að fórnarlömbin eru oftast ungar konur á djamminu í miðbæ Reykjavíkur. Hljóðið væri annað ef ungum karlmönnum væri hópnauðgað aðra hverja helgi í ósmurð rassgötin.

Þá færi allt ferlið í gang. Nauðgararnir yrðu hundeltir og skotnir á færi. Réttlætinu fullnægt á staðnum. Og byssumennirnir hylltir á Bessastöðum með fálkaorðum og uppreistri æru.

Tvö hjól undir hlunknum

Ja, hérna ,hér! Gamla (mamma) hefur lánað mér massa gott reiðhjól svo ég get ekki lengur afsakað mig.  Þvílíkt góð líkamsrækt fyrir gildan gosa. Verð að viðurkenna að það tók smá tíma að finna jafnvægið aftur. Kunnáttan gleymist með árunum þrátt fyrir fullyrðingar um annað.

Kemst nú lengri vegalengdir og get skoðað mig um borgina. Þarf ekki lengur að kjaga um sömu sveittu stígana eins og gæs. Hlussast í staðinn um á fáki fráum fram um veg og brenni umhverfisvænasta eldsneyti veraldar; aukakílóum vestræns offitusjúklings.

Einn með sjálfum mér

Tjill er vanmetin iðja.  Í kjölfar hrunsins er lenskan að fylla daginn af verkefnum. Helst þeim sem krefjast líkamsburða.  Annars er deginum sóað í tóma vitleysu. Dugir ekki að sitja heima og lesa.

Fyrir mér eru helstu gæði lífsins fólgin í að sitja og horfa á veggi. Láta hugann reika um fortíð, nútíð og framtíð.  Svona get ég setið tímunum saman og tjillað. Einn með sjálfum mér, penna og skrifblokk.