Snorri í Betel

Snorri í Betel var rekinn í dag fyrir að pönkast á samkynhneigðum og transfólki á blogginu sínu.  Og er það sorglegur ósigur fyrir tjáningarfrelsið.

Snorri er þess fullviss að hægt sé að bæla niður kynhneigð fólks. Og hann leggur samkynhneigð til jafns við barnagirnd.  Þetta séu tilfinningar sem hægt sé að stýra í aðra og betri átt. Skólayfirvöld og meirihluti foreldra á Akureyri eru honum ósammála.

Snorri á ekki að verða fyrir starfsmissi vegna trúarskoðanna sinna.  Ég lét þau orð falla fyrr í vetur að ég myndi fórna lífi mínu fyrir málfrelsi manna eins og Snorra sem ég er langt í frá sammála.  Ég stend við þau orð.  Tjáningarfrelsið er heilagt!

Snorri á ekki að þurfa að gjalda fyrir lífsskoðanir sínar svo lengi sem þær smitast ekki út í kennsluna.  Og mér skilst að Snorri hafi ekki verið með neins konar trúboð í sínum störfum.  Hlýtur að vera í lagi fyrir hann að tjá sig á netinu í frítíma sínum.

Meint nauðgun

Lögreglan á Hvolsvelli gat ekki setið á sér og gaf út fréttatilkynningu um árásarmann og meintan nauðgara sem voru í haldi eftir síðustu helgi. Málvenjan væri að nota lýsingarorðið meintur um nauðgara þar sem vitnin væru aðeins tvö: meintur gerandi og meint fórnarlamb.

Af hverju ælir lögreglan ekki bara út úr sér hinni sönnu ástæðu.  Að þeim finnist að stelpan (fórnarlambið) geti sjálfri sér um kennt fyrir að hafa verið svona full. Í því ástandi hafi hún beðið upp á að gestir og gangandi læddu limnum inn í hana þar sem hún lá bjargarlaus.

Grátlegt þegar varðstjórar koma í útvarpið og hósta út úr sér með herkjum að nauðgun sé hryllilegur glæpur sem enginn ætti að verða fyrir.  En það gera þeir bara eftir að þeir eru búnir að gera upp á bak sér með tilkynningu um meinta nauðgun.

Ljótu kallarnir

„EKKI þiggja far með ókunnugum“ var brýnt fyrir mér í æsku.  Ég hlýddi því en slysaðist einu sinni upp í jeppa hjá góðlegum afa með bílinn fullan af barnabörnum.  Mamma var ósátt og „ALDREI þiggja far með ókunnugum“ varð ófrávíkjanleg regla.

Þröstur mótorhjólalögga mætti í bekkinn og brýndi fyrir okkur að láta ekki blekkjast þegar ókunnugir væru að reyna að vingast við okkur.  Síst af öllu þegar þeir væru undir áhrifum áfengis því þá væri voðinn vís.  Við ættum að hlaupa í burtu og heim á leið. Láta svo foreldrana hringja í lögregluna.

Man eftir eldri manni á rauðum Skoda sem var alltaf að bjóða strákum niður í Snælandshverfi far. Við vorum vöruð við honum. Var víst einhver dóni með smekk fyrir ungum drengjum.  En það dró ekki úr honum kjarkinn að allir þekktu hann.

Vona að áróðurinn sé enn jafn mikill og jafnvel meiri í skólum landsins núna. Barnaníðingar veiða eins og úlfar. Stundum í hjörðum. Og eru réttdræpir í mínum augum.  Lægra lífsform get ég ekki hugsað mér.