Misviturt stjórnvald

Ótrúlegt til þess að hugsa að ég hafi eins og svo margir aðrir litlir strákar langað til að verða lögga þegar ég yrði stór. Í mínu tilviki var það vegna þess að litli bróðir hennar ömmu var þá þegar orðinn brautryðjandi í notkun hunda í fíkniefnamálum á Íslandi og ég bar (ber) ómælda virðingu fyrir honum.

Nú vorkenni ég hinsvegar allt of fámennri lögreglu sem neyðist til að rífa börn úr örmum mæðra sinna, bera út fólk og snúa niður friðsama mótmælendur. Ég hefði aldrei skrifað upp á slík skipti sem lítill drengur.

Lögreglan á alla mína samúð fyrir að neyðast til að sinna slíkri handavinnu fyrir óréttlátt og misviturt stjórnvald. Eins og það sé ekki nógu leiðinlegt hérna upp á Klakanum að á það sé bætandi!

Ritfrelsið fest í sessi

Loksins smá sigur fyrir ritfrelsið á Íslandi. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir tveimur blaðakonum í vil og áréttar að það er ekki hægt að dæma þig fyrir að hafa eftir orð viðmælanda þíns eins og íslenskir dómstólar hafa verið að gera síðustu árin.

Fólk hefur ekki einu sinni mátt vitna í opinber gögn eins og gamla dóma eða gamlar blaðagreinar.  Allt dæmt dautt og ómerkt og háar fésektir lagðar á þá sem voga sér að segja sannleikann. Nú verða þeir dómar vonandi leiðréttir og látnir ganga til baka og sektirnar líka.

Dómstólar landsins eiga að skammast sín og hreinsa út þá dómara sem hafa dæmt á þennan hátt.  Þetta lið hefur greinilega lesið lagabálkinn á hvolfi í háskóla!

Niðjamót

Þorði ekki annað en að gegna mömmu og dröslast austur í Fljótshlíð á ættarmót. Þó það væri ekki nema yfir daginn.  Nennti ekki að gista.  Við bræður og gaurarnir hans skildum svo gömlu eftir þegar við brunuðum í bæinn seint um kvöldið.

Langaði eiginlega ekki að mæta enda ferleg mannafæla en sé svo ekki eftir því. Skil ekkert hvaðan ég hef þessa fælni – DJÓK!  Hafði ekkert að óttast enda fólkið hennar Fjólu ömmu einstaklega vinalegt og skemmtilegt.  Mjög fallegt og gróðursælt þarna í sveitinni og flott útsýni.

Í bakaleiðinni skutluðum við frænku á Bestu hátíðina.  Rosalega fannst mér ég vera orðinn gamall við að sjá unga fólkið skemmta sér.  Reyndar skar einn sköllóttur sig úr á bílastæðinu. Sennilega útlendur gaur á mínum aldri eða eldri í gráum flauels Adidasgalla með gullkeðju um hálsinn. Kannski er enn pláss fyrir risaeðlur eins og mig á útihátíðum!?