Leiðindaljós

Æ, mikið er gott að þessar kosningar eru að baki.  Þá þarf ég ekki að æsa mig meira út af þeim.  Var enda óþarfi því þetta er nær valdalaust embætti.  Bara forsetinn sem gerir sér ekki grein fyrir þeirri staðreynd.

Leiðarljós (Guiding Light) tekið af dagsskrá vegna einhverra höfundarréttarmála úti.   Sem er sennilega tómt bull og þvættingur.  RÚV tímir bara ekki lengur að kaupa seríuna.  Við tekur einhver þýsk sápuópera.  ÞÝSK!!!  Hver nennir á glápa á slík leiðindi.

Mér finnst dagsskráin á RÚV vera að fyllast af evrópskum leiðindum.  Sennilega til að fylla 45% kvótann í nýjum lögum um stofnunina.  Gera okkur meira evrópskari í stað amerísk.  Langt er seilst til að koma okkur inn í ESB.

Annars skiptir þetta engu máli.  Sjónvarpsstöðvar eru að verða úreltar.  Fólk stjórnar sinni dagsskrá sjálft með netinu.  Og þegar blessaðir kommúnistarnir í menntamálaráðuneytinu fatta það, þá munu þeir reyna að stjórna netumferð inn í landið.

Risaeðlur niður á Alþingi neita að stíga inn í nútímann og minnka pappírsflóðið með því að nota spjaldtölvur.  Frekar á að halda áfram að prenta út öll skjöl í 63 eintökum fyrir 30 milljónir á ári. Tölvurnar myndu spara þennan kostnað um meira en helming.

Sveitalubbi eins og Steingrímur Joð má ekki til þess hugsa að leggja frá sér yfirstrikunarpennann sem hann mundar svo ótt og títt í þingsal meðan röflað er yfir hausamótunum á honum. Sendum þingheim á tölvunámskeið!

Vanvirt lýðræði

Ef við Íslendingar hefðum ekki verið svo heppin að vera undir Dönum um aldir, þá hefði lýðræði seint borist til okkar stranda. Danir neyddu það ofan í okkur eftir þeirra eigin lýðræðisbyltingu frá Þýskalandi.  Annars værum við eflaust enn með vistarband og bann við þéttbýlismyndun við sjóinn svo bændahöfðingjar myndu ekki missa vinnuafl sitt.

Seinni lýðræðisbyltingin sigldi hingað vestur frá Ameríku í kjölfar stríðsbrölts Hitlers nokkurs á meginlandi Evrópu.  Bandaríkin tóku við hervernd landsins af Bretum.  Síðan þá höfum við verið kölluð Litla-Ameríka á hinum Norðurlöndunum. Sem mér finnst óskiljanlegt miðað við hve fasísk íslensk stjórnvöld eru með boðum sínum, bönnum og ofursköttum.  Kannski er ég bara of frjálslyndur í hugsun?

Gæfa okkar og böl er að hafa ekki þurft að hafa fyrir lýðræðinu sem við þó njótum. Við erum sennilega eina landið í heiminum sem öðlaðist aukin réttindi án þess að nokkur blóðdropi félli til jarðar. Við nutum þess að vera nýlenda Dana. Lýðræði annarra landa var greitt með lífi milljóna manna sem tóku kúlu í brjóstið fyrir málstaðinn.

Þess vegna nauðgum við lýðræðinu aftur og aftur í hverjum kosningum.  Kjósum yfir okkur tóma siðleysingja og glæpamenn. Berum enga virðingu fyrir kosningarétti okkar. Hugsum ekki um afleiðingar þess hvernig við greiðum atkvæði, heldur höldum með einhverju liði sem á að klækja á hinu liðinu sem við virkilega þolum ekki.  Greiðum þeim næst versta atkvæði okkar í stað þess að veðja á nýja hesta.

Einvaldur til lífstíðar

Þegar ég fór að muna eftir mér var Kristján Eldjárn forseti Íslands og Jimmy Carter Bandaríkjanna.  Tveir góðlegir menn og gæðasálir.  Sá fyrri fornleifafræðingur en hinn fyrrum næstráðandi í kafbátaflotanum, hnetubóndi og prestur sem hlustaði á Bob Dylan.

Fljótlega tóku Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan við völdum.  Ég vandist því að kona getur verið í æðstu embættum rétt eins og karl.  Horfði á nýársávörp Frú Vigdísar fram á fullorðinsár.  Svo komst refurinn til valda og ég virðist ekki geta losnað við hann. Guð veit að ég hef aldrei kosið hann.  Af hverju getur hann ekki bara horfið á eftirlaun?

Ólafur Ragnar er orðinn jafn leiðinlegur og George W. Bush yngri sem gerði heimsbyggðinni lífið leitt í tvö kjörtímabil í röð.  Nema að Ólafur er að hefja sitt fimmta kjörtímabil.  Franklin D. Roosevelt sat ekki einu sinni svona lengi.  Hóf sitt fjórða í miðri heimsstyrjöld en dó stuttu seinna.

Eftir það var lögunum breytt í Bandaríkjunum og núna má hver forseti bara sitja í átta ár svo lýðræðinu sé best þjónað.  Við á Íslandi skiljum ekki slík rök.  Enda erum við gjörspillt bananalýðveldi stofnað undir verndarvæng Ameríku í miðju heimsstríði meðan aðrar þjóðir kvöldust undir járnhæl öxulveldanna.

Í Rómarveldi fyrir tíma keisaraveldissins mátti hinn kjörni leiðtogi sitja lengur ef hætta stafaði að ríkinu eða óvissutímar væru framundan.  Júlíus Sesar nýtti sér þessa glufu og lét gera sig að einvaldi til lífstíðar (dictator).  Eftirmenn hans kölluðu sig keisara (Ceasar). Enn í dag er embætti kanslara Þýskalands dregið af nafni Sesars.

Hinn gamli prófessor Ólafur Ragnar kann stjórnmálasöguna spjaldanna á milli. Vissi að hann þyrfti bara að dreifa smá ótta í hjörtu samlanda sinna og koma fram sem hinn sterki maður til að hljóta kosningu til síns fimmta kjörtímabils.  Sú aðferð dugði Adolf Hitler á sínum tíma.  Sá lét loks gera sig að einvaldi því óvissutímar voru framundan og stríð fyrir höndum.  Við vitum hvernig sú saga fór.