Ytra byrðið

Fyrir hrun var þjóðin rosalega upptekin af því að eiga flott heimili og Range Rover á hlaðinu fyrir framan tvöfalda bílskúrinn.  Nú gengur allt út á að líta sem best út og vera á fullu í Cross Fit og Boot Camp.  Innri maðurinn skiptir engu máli.  Útlitið er fyrir öllu.  Pakkningarnar.  Skelin.  Ytra byrðið.

Fólk eyðir sumarfríum í að ganga þvert yfir landið og að safna fyrir eitthvert málefni.  Hlaupa upp og niður Esjuna tíu sinnum á einum og sama deginum. Hjóla í vinnuna. Taka þátt í marathonum.  Búa til grenjusögur fyrir helgarblöðin hve mjög þau hafa breytt lífi sínu til góðs.

Óþolandi myndir af grennra fólki poppa upp á fésbókinni dag hvern þar sem vinir og kunningjar skilja eftir ummæli á borð við djöfull ertu orðinn flottur! Laxamyndirnar hafa vikið fyrir vel smurðum vöðvum og brúnkukremi.

Enginn er lengur gjaldgengur nema að hafa gert líkamlega erfiðan hlut yfir daginn og póstað því á fésið. Helst meðfram þremur störfum og brjóstagjöf. Enn betra ef dauðum stundum er eytt í prjónaskap og aðrar handiðnir.

Enginn þorir lengur að nefna sjónvarpsgláp nema fótbolta og golf.  Annað er rugl og tímaeyðsla.  Stjórnmál eru bull.  Best að kjósa bara íhaldið og Ólaf Ragnar. Leyfa þeim að sigla landinu aftur til Helvítis í innkaupakerru.  Kemur okkur ekki við meðan við fáum ódýr lán og getum keypt nýjan Reinsa.

Atkvæði greitt

Þrammaði fyrir allar aldir niður í Smárann til að kjósa.  Djöfulsins hitasvækja strax klukkan tíu um morguninn.  Þræddi framhjá Sporthúsinu við Kópavogsvöll. Sjálfsdýrkunarsöfnuður að æfa þar úti við. Öðru megin var Crossfit og hinu megin Hot Yoga.  Báðir hópar horfðu á mig eins og ég væri krabbamein.

Ætlaði ekki að komast inn á kjörstað fyrir gamalmennum sem gengu við staf.  Þó engin röð við kjördeild I og ég skundaði bak við hengið. Starði furðu lostinn á ólöglegan seðilinn sem innihélt enga ferninga fyrir X-ið mitt. Tilefni til kæru. Hæstiréttur hlýtur að ógilda kosningarnar.  Annað eins hefur hann gert.

Einhver eftirlitsdvergur dró frá hjá mér meðan ég var að krossa við.  Sendi honum illt auga.  Ekki eins og það væri einhver örtröð svona snemma.  Mátti ég ekki skoða kjörseðilinn í friði.  Svona hélt fíflið áfram eftir að ég steig út.  Sé eftir því að hafa ekki sagt honum að hengja sig.

Skundaði svo út í Bónus.  Kom við á kamrinum niður í kjallara. Heldur enginn friður þar fyrir frekjum og fólum.  Liðið hékk á húninum meðan ég kastaði af mér vatni.  Gott ef sumir ráku ekki öxlina í hurðina um leið.  Spurning hvort þau hefðu hent mér út á sprellanum ef þau hefðu getað brotið upp hurðina.

Greip með mér nokkra Thule úr dýrustu búð landsins.  Alltaf gaman að fylgjast með öðrum sem reka þar inn nefin gangandi með andlitin niður í gólf á þvílíkum hraða.  Passa sig að horfa ekki á neinn né heilsa.  Það er víst skammarlegt að kaupa áfengi. Barst bara aldrei minnismiðinn þess efnis.

Hvílustaðir

Við frænka og mamma brunuðum upp í garð þar sem afi og amma hvíla. Systurnar komu fyrir sumarblómum og snyrtu í kring um glæsilegt leiðið sem bróðir þeirra hafði gengið frá í fyrra.  Blessuð gömlu hjónin.

Er að koma smá svipur á Kópavogskirkjugarð.  Tréin hækka og skjól er tekið að myndast. Samt sorglegt að sjá kannski fimm ára leiði sem enn bera veðurbarinn hvítan kross og ekkert er hirt um af ættingjum og vinum. Engin merki um að viðkomandi eigi ástvini á lífi.

Vissulega er fólk misduglegt að sinna grafreitum sinna nánustu. Og kannski á fólk ekki heimagengt eða engan pening til að reisa legstein.  Þó grunar mig að sumu fólki sé bara nákvæmlega sama eftir greftrun.  Slíti þar öll tengsl við þann látna.

Var nefnilega bent á að viss gröf í Bessastaðakirkjugarði sé furðu látlaus með litlum og liggjandi stein sem sæmir varla þeirri sómakonu sem þar hvílir.  En eins og ég segi, þá eru kannski þar á ferð óskir hennar sjálfrar.  Þarf ekki að vera hirðuleysi ættingja um að kenna.