Kokgleypt

Byrðar lýðræðissins eru miklar.  Stundum snýst það upp í andhverfu sína eins og núna þegar minnislaus lýðurinn fékk að ráða för.  Vonandi mun EFTA-dómstóllinn ekki dæma okkur aftur til steinaldar í haust fyrst við létum blekkjast til að hafna Icesave III.  Þá mun nú koma annað hljóð í skrokkinn hjá aðdáendum ÓRG.

Ekki hafnaði ÓRG Icesave I (Svavarssamningnum) sem var þrisvar sinnum verri en sá síðasti.  Hollendingar og Bretar leystu okkur undan honum vegna fyrirvara Alþingis.  Þá allt í einu sá forsetinn sér leik á borði til að ná endurkjöri.  Upp frá því fór leikritið í gang.

Fyrsti þáttur var að hafna II og III.  Annar að þykjast ætla að hætta til að laða að mótframbjóðendur.  Þriðji að láta Guðna Ágústsson safna undirskriftum. Fjórði að hefja baráttuna af krafti tveimur vikum fyrir tímann meðan helsti andstæðingurinn lá á sæng og gat ekki beitt sér sem skyldi.  Fimmti að ófrægja maka Þóru.  Sjötti þáttur að spyrða hana að ósekju við ríkisstjórnina.

Og lýðurinn kokgleypti þvæluna. Okkur er ekki viðbjargandi. Þýðir ekkert að röfla þegar ÓRG nælir fálkaorðunni í bringuna á Huang Nubo fyrir að hafa keypt upp hálendið og hálfa borgina. SAUÐIRNIR YKKAR!!!

Næstu sextán ár

Helmingur þjóðarinnar gekk jarmandi eins og lömb á leið til slátrunar inn í kjörklefann og krossaði slefandi við Ólaf.  „Þá sagði Jesús: Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera.“ (Lúkasarguðspjall 23:34)

Mér finnst einsýnt að nú sé búið að breyta forseta í konung.  Við losnum ekki við grísinn fyrr en hann hrekkur upp af í embætti eins og Sveinn Björnsson heitinn.  Og þá tekur önnur dætra (sú frekari) hans við eða einhver annar honum þóknanlegur.

Ástæða er til að óttast framtíðina þegar sauðdrukknir Heimdellingar fagna með lófataki niður í Valhöll kjöri gamals komma. Eins þegar helsti stuðningsmaður hans er Guðni Ágústsson uppistandari fjósafasista.

Fróðlegast er þó að fá staðfest að helmingur þjóðarinnar telur að hér á Íslandi hafi aðeins orðið „meint“ hrun. Að klappstýrustörf fyrir þjófa og ræningjalýð skipti engu máli og fyrir það eigi ekki að refsa í kjörklefanum.

Að ári mun Sjálfgræðgisframsóknarflokkurinn setjast aftur að kjötkötlunum.  Og það með þennan gosa sem forseta.  Árið 2007 mun snúa aftur með öllum sínum viðbjóði.  Grætt á daginn og grillað á kvöldin.  Fjör og fálkaorður á Bessastöðum.

Er skapi næst að prófa hvort forsetakerran sé skotheld með ímyndaða rússneska árásarrifflinum mínum.  –  Nei, ég segi svona. Mér verður nákvæmlega sama eftir helgi.  Þá verður allt gleymt og ÓRG byrjaður að lóðsa Kínverja hingað.

Gengið til góðs

Ég er frekar einföld sál og auðblekktur.  Þegar ég er latur og nenni ekki að hreyfa mig, þá geri ég mér upp erindi í verslanir lengra í burtu.  Annars fæst ég ekki upp úr sófanum. Getur orðið svo niðurdrepandi að láta ræna sig marga daga í röð af hverfissjoppunni.

Í gær þrammaði ég í Nettó í Mjódd.  Til að leiðast ekki gerði ég mér far um að þræða hliðargötur.  Sá margt breytt og nýtt. Enda var ég ekkert að flýta mér og settist reglulega niður svo ég fengi ekki kransæðastíflu á leiðinni.  Nenni nefnilega ekki að deyja út á götu eins og róni.

11-11 í Þverbrekku er orðin að sólarhringsbúð 10-11.  Án efa til mikillar gleði fyrir íbúana þar í kring.  Gamla KFUK/KFUK-húsið við Lyngheiði er orðið að raðhúsi.  Sennilega fyrir löngu síðan. VAKA flutt inn þar sem hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnar var á Smiðjuvegi og Jói vinur skúraði á kvöldin.

Fólkið í Mjóddinni er þó jafn skrítið og áður.  Og dagdrykkjufólkið situr enn í rjóðrinu rétt hjá Strætó. Sem er gott að vita.  Þá er bara að skipuleggja hvert ég þramma í dag.  Einhverjar hugmyndir?