Kryddpíurnar

Þær voru kallaðar Scary (Melanie Brown), Baby (Emma Bunton), Ginger (Geri Halliwell), Posh (Victoria Adams/Beckham) og Sporty (Melanie Chisholm).  Spice Girls yfirtóku heiminn árið 1996 með laginu Wannabe.  „Girlpower“ var orðin staðreynd.

Allar stelpur (og margir strákar) veggfóðruðu herbergin sín með plakötum af sveitinni og keyptu diskana þeirra ásamt allskyns öðrum varningi. Markaðssetningin er enn í dag talin ein sú best heppnaða og arðvænlegasta í sögunni.  Samt gáfu þær bara út þrjár stórar plötur.

Nú á að setja upp söngleik með lögunum þeirra sem mun án efa slá í gegn.  Þvílík snilld!

Ættarmót

Enn eitt ættarmótið framundan og ætlast er til að ég mæti sem fulltrúi allra systkina minna.  Nenni þessu ekki lengur. Mætið bara sjálf!  Mér leiðist að þurfa að deila þröngu rými með öðru fólki og er ekkert feiminn við að viðurkenna það.

Er haldinn slæmri innilokunarkennd og fæ köfnunartilfinningu ef loft að utan blæs ekki óhindrað inn þar sem ég sef.  Og verð að hafa að minnsta kosti tvær útgönguleiðir.  Annars fríka ég út. Gruna stundum að ég hafi verið sleðahundur í fyrra lífi.

Framtíðin þolir enga bið

Í viðtali við þáttastjórnendur Armageddon á X-inu FM97.7 lýsti Þóra að hún væri utan við trúfélög og ekki kristinnar trúar.  Þetta eiga netmiðlar og fávitar sem verma athugasemdakerfi þeirra eftir að grípa á lofti.

Hver er í raun kristinn á þessu hundheiðna landi?  Við hýsum fjölmörg hlið að Helvíti í gegnum eldfjöllinn okkar.  Sótt var að sjálfum Ólafi Ragnari árið 1996 fyrir trúleysi en hann laug sig út úr því með því að þykjast trúa á Guð.  Þóra er hugrakkari en svo.

Merkilegast fannst mér lokasvar hennar.  Að hún myndi ekki bjóða sig aftur fram að fjórum árum liðnum ef hún myndi tapa þessum kosningum.  Þar hafið þið það sem teljið Þóru of unga og eiga ekkert erindi inn á Bessastaði fyrr en kamelljónið ÓRG hefur lokið sér af.

Tækifærið gefst aðeins núna.  Framtíðin þolir enga bið.  X-ÞÓRA!