Ég vorkenni dætrum ykkar!

Mér finnst svo skrítið að karlmenn nálægt mér og Þóru Arnórsdóttur í aldri skuli finna henni allt til foráttu.  Nefna mann hennar sem afsökun fyrir að kjósa hana ekki eða hve ung börn þau eiga.  Þessu halda menn fram sem eru sjálfir í nákvæmlega sömu sporum í bullandi uppeldi.

Sem segir allt sem segja þarf um viðkomandi karlpunga. Þeir munu greinilega aldrei styðja sínar konur jafn dyggilega og Svavar Halldórsson gerir einmitt núna.  Munu aldrei fórna eigin starfi til að fylgja konu sinni eftir út í framboð.  Í þeirra augum eiga konur bara heima bak við eldavélina og með útglennta fætur í lok dags.

Svo voga þessir pungar sér að kalla Svavar ofbeldismann fyrir eitthvað sem hvaða faðir myndi gera ef honum yrðu meinaðar samvistir með börnunum sínum.  Og fyrir að lenda í slagsmálum eftir ball. Hver okkar hefur ekki lent í álíka rugli?

Ég vorkenni dætrum ykkar!

Evran er að deyja!

Evrópa er að renna kylliflöt á hausinn.  Kreppan færist hægt upp álfuna og margir hérlendis trúa því virkilega að með því að sitja fyrir utan ESB munum við sleppa. Með því að kjósa áfram vin þjófa og kvótagreifa sem forseta, þá munum við sleppa með þann litla árangur í efnahagsmálum sem þó hefur áunnist frá hruni.

Skilja ekki að meirihluti útflutningstekna okkar er í evrum en ekki dölum.  Aðild eða ekki skiptir nákvæmlega engu máli.  Kreppan virðir hvorki himinn né höf landa á milli.  Hún mun brjóta á Íslandsströndum fyrr eða síðar.  Síðustu þrjú ár hefur ríkt niðursveifla.  Í vetur mun allt botnfrjósa.

Samsærin í höfði mér

Ég elska góðar samsæriskenningar.  Sérstaklega þær sem fæðast í kollinum á sjálfum mér.  Til að mynda tvær um hvers vegna forsetinn hætti við að hætta eftir sextán ár í embætti.  Sú fyrri að Kínverjarnir þurfa á honum að halda til að hasla sér völl hérlendis næstu fjögur árin.  Seinni að öruggur sigur Þóru hefði gert úti um drauma annarrar tvíburadóttur hans um Bessastaði eftir fjögur ár.

Nennti ekki að glápa á kappræðurnar á Stöð 2.  Ekki eftir klúðrið síðast.  Skilst þó að stjórnendurnir hafi staðið sig ágætlega.  Finnst þó ótrúlegt að dráttur úr hatti hafi skilað uppröðun frambjóðenda: konur-karlar.  Eitthvert leikrit þar á bak við.