Falskur fugl

Stór hluti þjóðarinnar finnst það vera eitthvert lögmál að Ólafur Ragnar sitji fjögur ár í viðbót því óvissutímar séu framundan.  Sama lið á ekki eftir að þora að ljá nýjum framboðum atkvæði sitt að ári liðnu í kosningum til Alþingis.  Þau vita hvað þau hafa og eru hrædd við breytingar.

Gott og vel.  En vita þau hvað þau hafa þegar kemur að Ólafi?  Af hverju hættir hann skyndilega við að hætta og býður sig fram fimmta kjörtímabilið?  Heldur fólk virkilega að hann muni stöðva umsóknarferlið inn í ESB?  Eða koma breytingum á stjórnarskránni til þjóðaratkvæðis?  Neeeiiiii.

Óli býður sig fyrst og fremst fram til að vinna málefnum Kínverja og Rússa á Íslandi brautargengi.  Olía fer kannski að finnast innan landhelginnar.  Siglingaleiðir um Norðurskautið að opnast.  Þá munu margir vilja vingast við okkur og forsetinn er búinn að velja okkur bandamenn að okkur forspurðum.  Við munum samþykkja þessar fyrirætlanir með því að kjósa hann enn einu sinni til setu á Bessastöðum.

Ég hnaut um að Ólafur kveðst sjálfur hafa lagt til tvær milljónir í kosningasjóðinn sinn.  Hvernig getum við vitað að sá peningur sé ekki áður kominn frá Huang Nubo eða Vladimir Putin?  Eða mögulegar aðrar framtíðargreiðslur af persónulegum reikningi forsetans.  Ekki er hægt að rekja það nema rjúfa bankaleynd og mér skilst að það sé lögbrot.  Jafnvel þó einhver blaðamaður fái slíkt yfirlit frá nafnlausum sendanda.

Ansi er ég hræddur um að fólk eigi eftir að sjá eftir að hafa kosið Ólaf Ragnar enn einu sinni yfir okkur.  Bara sú staðreynd að hann elur á ótta fólks svo því finnst það knúið til að greiða honum atkvæði er næg ástæða til að hunsa hann alveg þar næsta laugardag.  Þannig hafa margir falskir fuglar komist til valda og svo snúist gegn þjóð sinni.  Nægir að nefna Adolf Hitler í því sambandi.

Hvernig varstu klædd?

Hef verið að lesa átakanlegar lýsingar fórnarlamba nauðgana á drusluganga.org. Eftir nokkrar sögur var ég orðinn svo reiður að gat ekki meira í bili. Blóðþrýstingurinn fór upp úr öllu valdi.  Verð að skammta mér tvær til þrjár frásagnir á dag.

Lýsingarnar höfðu slík áhrif á mig að ég fór að skammast mín fyrir að hafa fæðst karlkyns.  Djöfulsins aumingjar sem kynbræður mínir geta verið!   Þeir sleppa nær alltaf undan réttvísinni og skömminni sem þolendurnir þurfa að burðast með vegna þess að íslenskt samfélag trúir konunum sjaldnast.

Hún hlýtur að hafa kallað nauðgunina yfir sig með druslulegum klæðnaði, daðri eða ölvun.  Af hverju var hún að bjóða manninum með sér heim?  Misskildi hún ekki bara eitthvað?  Af hverju gekk hún einsömul heim?  Hvað er þetta, hann gat ekki vakið hana til að spyrja leyfis.

Stundum finnst mér eins og lítið hafi breyst síðan fyrr á öldum þegar konur gátu ekki gengið óhultar milli bæja án þess að eiga á hættu að einhver andskotinn kæmi hlaupandi á eftir þeim með buxurnar á hælunum.  Þá eins og nú þýddi lítið að kæra atburðinn því sjaldnast eru önnur vitni en gerandinn og þolandinn.  Orð gegn orði.

Rasshaus gengur laus

Gillz laus allra mála af fyrri kærunni og Guðbergur Bergsson af öllum mönnum tekur upp hanskann fyrir hann og gerir lítið úr stúlkunni sem kærði Egil og kærustuna hans.  Lögmenn Störe velta því í kjölfarið fyrir sér hvort að umbjóðandi þeirra eigi að fara í mál við hálfa þjóðina vegna ummæla í athugasemdakerfum auk þess að heimta rannsókn á aðdraganda þess að stúlkan kærði þau fyrirmyndarparið yfirleitt.

Flestir myndu nú bara fegnir um frjálst höfuð strjúka og halda kjafti í framhaldi af því.  En nei, ekki verjendur Egils Einarssonar sem finnst vegið að drengnum að fá ekki að stunda trekant í friði fyrir femínistum þessa lands.  Því allt var þetta víst tómur misskilningur hjá stelpunni.  Auk þess er mamma hennar í Vinstri-Grænum.  Slíkt fólk hatar eðlilega Gillzenegger sem trúir á frjálsar ástir (óháð samþykki hins aðilans).

Náungi sem hefur hótað nafngreindum konum nauðgunum á netinu getur ekki ætlast til að fá blíða meðferð þegar hann er svo loks kærður fyrir nauðgun.  Jafnvel þó honum og FM-hnökkunum vinum hans hafi þótt það þrælfyndið á sínum tíma að ætla láta konur sem líkuðu ekki talsmáti hans fá einn „beinstífann“ í „loðin klofin“.

Lögmenn fjarþjálfarans frækna gefa í skyn að pólítík hafi stjórnað því að hann og kærastan voru ákærð.  Að á bak við ljúgandi stúlkuna standi VG og femínistar í persónulegri herferð gegn honum. Gott og vel.  Má þá ekki alveg eins gefa í skyn að hann hafi sloppið við réttarhöld því í rassvasa hans hvílir helblátt flokksskírteini? – Nei, ég segi bara svona.