Snusukvef

Einhver bölvuð kvefpest búin að ná mér.  Var svona líka í gær niður á Rútstúni.  Lét mig samt hafa það að hökta þar á eftir mömmu.  Maður vogar sér ekki að segja nei við nýbakaða langömmu.  Hafði svo sem gott af því að hlunkast aðeins úti í hreina loftinu og rekast á fólk.

Hið góða við að sækja viðburði í Kópavogi er að þar drukknar maður ekki í mannfjölda.  Hittir vini, kunningja og nágranna.  Á ekki í hættu að verða sektaður fyrir að leggja bílnum upp á gangstétt eða úti á túni.  Og það eru kvöldtónleikar í Kópavogi fyrir blessaðar gelgjurnar.

Besti flokkurinn í Reykjavík ætti að heita Leiðinlegasti flokkurinn.  Þau eru bara talsmenn leiðinda. Slógu af kvöldtónleikana.  Hótuðu að sekta fólk sem fann ekkert stæði fyrir bílinn sinn.  Og sýndu hundaeigendum fingurinn.  Verður „gaman“ að sjá hvernig þau munu klúðra Gleðigöngunni og Menningarnótt.

„Það er gott að búa í Kópavogi!“

Djöfull er ég flottur

Eftir hrunið varð montfólkið að finna sér nýjan vettvang.  Ekki er lengur stemning fyrir rándýrum húsgögnum og bifreiðum sem birtust í Innlit/Útlit.  Nú er áherslan lögð á líkamsburð.  Crossfit og Bootcamp.  Enginn er gjaldgengur núna nema að vera rosalega flottur.  Aðrir eru aumingjar með hor í nös.

Fyrir hrun var þetta lið vel frambærilegt en er nú enn flottara.  Svo glæsilegt að það fær fullnægingu við að líta á sjálft sig í spegli.  Á meðan engjumst við fitubollurnar um.  Jafnvel þó við séum á niðurleið í kílóum talið.  Við eigum svo langt í land að nálgast slík flottheit.  Sem er svo letjandi að mörg okkar gefumst upp á að bæta okkur.

Ekki bæta þættir eins og Stóra Þjóðin úr skák.  Þar sem ofurskvísan Inga hamrar á hve ljót og feit við erum orðin.  Hvað veit hún um slíkt?  Hefur aldrei verið feit eða ljót.

Út í grænni náttúru

Money makes the world go around.  Þannig er það að minnsta kosti þegar kemur að tveimur stærstu útihátíðum sumarsins.  Áður fyrr neyddust gestir til að drösla tjöldum, svefnpokum, dýnum og stólum með sér.  En ekki lengur.

Nú er hægt að leigja allt draslið á staðnum.  Herlegheitin bíða uppsett og þú þarft ekki einu sinni að ganga frá.  Leigan (www.rentatent.is) sér um allt vesen. Draumur hvers djammara.  Forsalan í Eyjum bauð upp á eitthvað svipað.  Jafnvel svefnpokapláss inn í íþróttahúsum.  Valkostur sem er fyrir löngu uppseldur.

Reyndar einn ókostur við annars góða þjónustu að leigutaki þarf að vera búinn að rýma tjaldið klukkan 10:00 á mánudegi í Eyjum og sunnudegi að Gaddstaðarflötum.  Frekar erfitt þegar tveggja-þriggja daga þynnkan er rétt byrjuð að kikka inn.

Sumir eru kannski enn drukknir eða nýbúnir að hösla.  Þurfa aðeins meiri tíma til að klára dæmið. Getur komið sér illa að þurfa að gera það út á túni fyrir allra augum.  Fresturinn þyrfti að vera til kl. 16:00 til að hnýta alla lausa enda.

Síþyrstir gestir Bestu hátíðarinnar þurfa svo ekki einu sinni að koma með áfengi með sér.  Í boði verða „kaldir drykkir“ yfir borðið á meðan djamminu stendur. Hentar einstaklega vel fyrir barflugur úr 101 Reykjavík sem eru nýbúnar að slá smálán.

Þetta eru ekki neinar „útihátíðir“ lengur.  Bara miðbæjardjömm undir berum himni með sem minnstum óþægindum.  Ofvernduð borgarbörn láta ekki bjóða sér vosbúð og vesældardóm.  Heimta sömu þjónustu og niður í miðbæ.  Enda kann enginn lengur að tjalda.