Heilsufasismi

Hreinlega heyrði ískra í einhverjum heilsupostulanum af gleði þegar hugtakið „neyslustýring“ bar á góma.  Ofurskatt á sykraðar vörur.  Það leysir allan vanda spikfeitrar þjóðar.  Sköttum okkur út úr offitunni.  Hálfvitar!

Hefur ofsköttun á áfengi og tóbaki skilað viðunandi árangri?  Nei, alls ekki.  Bara rekið fólk út í heimaframleiðslu, feluleik og gjaldþrot.  Og skapraunað þeim meirihluta sem ekki misnotar áfengi en þarf samt að greiða útlim fyrir smá léttvín með grillsteikinni.

Áróður og vitundarvakning er það eina sem skilar einhverjum árangri.  Stór hluti Íslendinga skilur það því miður ekki.  Vilja frekar grípa til þvingunaraðgerða. Sumpart vegna umhyggju yfir heilsu samborgara sinna en mestanpart vegna þess að það er svo gaman að drottna yfir öðrum og láta fólk lúta sínum vilja með valdboði að ofan.

Lénsveldið Ísland

Eitt sem ég skil ekki.  Af hverju mættu sumir sjómenn á fund LÍÚ með hjálma á höfði?  Átti það að undirstrika hve hættulegt starfið er eða ógna þeim sem voru þeim ekki sammála?  Og hver mætir í mótmæli vegna þess að yfirmaðurinn skipar svo til um? – Þrælar og leiguliðar!  Minnir á Sturlungaöld þegar höfðingjar beittu fyrir sig bændum, vinnumönnum og þrælum.

Annað vefst fyrir mér.  Hvernig getur galtómur ríkissjóður ábyrgst Vaðlaheiðargöng og greitt upp skuldahalann eftir SpKef?  Sparisjóð sem átti fjölda viðskiptavina á Norðausturlandi fyrir hrun.  Kannski vegna þess að bæði viðskiptavinirnir og göngin eru í kjördæmi Steingríms Joð.  Hver segir að framsóknarmennskan sé dauð úr öllum æðum.

Gróðinn af útgerðinni er svo gífurlegur að ekkert mál er að ráðast í rándýra áróðursherferð gegn frumvarpi stjórnvalda í öllum fjölmiðlum; jafnt prentmiðlum, neti, útvarpi og sjónvarpi.  Og auk þess að sigla flotanum til Reykjavíkur til mótmæla.

Hagsmunirnir eru svo ríkir að þeim má ekki deila með þjóðinni.  LÍÚ lítur á fiskinn í sjónum sem sitt einkamál.  Kominn tími til að leiðrétta þá mafíu í eitt skipti fyrir öll.  Fiskurinn er sameign þjóðarinnar!

Fyrsti sláttur

Óttalegur ræfill sem ég er orðinn.  Tók mig tvo daga að slá garðinn (4-5 tíma). Grasið líka orðið nokkuð hátt.  Fór mestur tíminn í að tæma safnkassann á slátturvélinni ofan í svarta ruslapoka.  Spurning hvort gamla aðferðin sé ekki fljótlegri:  Að raka grasið saman.

Ætlaði að rumpa þessu af á einum degi en þorði ekki að halda áfram út af boltasparkinu í Evrópu.  Sá í dag að það var rétt ákvörðun.  Því þegar ég var að ganga frá varð ég vitni að ótrúlegri uppákomu.

Nokkrir guttar voru í boltaleik út í garði þegar nágranninn reif upp hurðina hjá sér og öskraði eins og óður að þeir ættu að hætta þessum látum og drulla sér inn.  Get svarið það að mannfýlan froðufelldi og titraði.  Sýndist hann reyndar bara vera skítþunnur og búinn með bjórinn.

Beið bara eftir að hann myndi hjóla í gaurana ef þeir hefðu ekki hlýtt umsvifalaust.  Þvílík, andskotans frekja!  Strákarnir voru ekki einu sinni í garðinum hans.  Og allt vegna þess að vesalings auminginn fékk ekki grafarþögn til að horfa á fótboltann.  Hvað er eiginlega að fólki!  Hækkið bara í græjunum og lokið gluggunum.

Annars var slátturinn fín líkamsrækt fyrir hlunk eins og mig.  Hef einsett mér að erfiða sem mest á hverjum degi.  Ganga eða hjóla  í stað þess að hristast milli staða í strætó.  Hefur gengið vel framan af mánaðarins í þessum þurrki sem hrjáir bændur og búalið.  Er oftast alveg sigraður eftir daginn þegar ég skríð í bælið.  Sýnir bara í hvers konar kökuformi ég er.