Frábært kvöld að baki með sjaldséðum vinum. Fésbókin er undratæki þegar undirbúa skal hitting. Tók bara níu daga frá hugmynd að veruleika. Borgar sig greinilega að stofna hóp á facebook. Verður vonandi til þess að fjölga hittingunum í framtíðinni. Takk fyrir frumkvæðið Bjarni!
Flokkur: Uncategorized
Nauðgað með augunum
Evu Hauksdóttur pistlahöfundur og bloggari verður seint talin öfgafemínisti. Hún var gestur í Silfri Egils í dag og lýsti sínum umdeildu skoðunum.
Samkvæmt hennar skilningi þá kæra konur ekki lengur ofbeldi gegn sér heldur slaka upplifun á samlífi tveggja einstaklinga. Þær eru ósáttar við að fá ekki fullnægingu og þess vegna telst það nauðgun. Maðurinn stóð ekki undir væntingum.
Eflaust hefur netið logað síðan þættinum lauk. Öfgafemínistar eru ekki alveg að gleypa þessa skýringu. Í þeirra huga telst það til nauðgunar ef náungi horfir á eftir lögulegri stúlku. Hann nauðgar henni í huganum.
Sannleikurinn
Verð alltaf hugsað til Robin Williams þegar uppþurrkaðir alkar opna á sér rifuna mælandi sannleikann sinn. Í einu uppistandi leikur hann slíkan einstakling og segir: „Don’t worry about me, I’ll be in the corner kickin’ the cat.“
Skil vel að sumt fólk þarfnast meðferðar við drykkju. Skil samt ekki af hverju þetta lið þarf svo að gaspra um edrúmennsku sína í annarri hverri setningu. Rétt eins og þau hafi frelsast til Jesú.
Það er enginn einn sannleikur til. Og enginn er fullkominn. Þrátt fyrir allar meðferðir. Flest okkar lifum ágætu lífi með búsinu og misnotum það bara stöku sinnum eins og flestir Íslendingar sem búum við dýrasta áfengisverð í heimi.
Var að hlusta á „Og svaraðu nú!“ hans Hemma Gunns á Bylgjunni. Mætti halda að SÁÁ hafi sponsorað þáttinn. Þvílíkt helgislepja um edrúmennsku.