Fólk sem hatar ketti

Skil ekki enn fólk sem hatar ketti.  Hvað hrjáir þetta lið?  Voru þau klóruð illa meðan þau voru að þvinga kisa einhvern tíma í æsku eða eru þau bara svona illa innrætt að upplagi?

Skil að minnsta kosti hundafólk sem hatar ketti.  Sá lýður þolir ekkert sjálfstæði hjá dýrunum sínum.  Hvuttarnir eiga að hlýða möglunarlaust.  Kettir eru allt of sjálfstæðir.  Þeir ráða sjálfir ferðinni og eigendurnir hlýða þeim án þess að gera sér grein fyrir því.

Annars skilst mér að fólk sem hatar ketti sé helst fólk sem fékk ekki að eiga nein dýr í æsku nema þau væru geymd í búrum.  Svo þegar þau fullorðnast og mæta ketti sem hefur skriðið inn um kjallaragluggann þeirra, þá fríka þau út og vita ekki hvað þau eiga til bragðs að taka annað en að skrifa níðgreinar um ketti og krefjast kattarbanns.

Í þeirra heimi búa gæludýr í búrum.

Ólafur er óþarfur

Fávís maður eins og ég skilur ekki af hverju allt mun fara til helvítis ef Ólafur forseti fær ekki að hanga í embætti í tvö ár í viðbót.  Skil ekki heldur hvers vegna náunginn hætti við að hætta.  Enginn er ómissandi.

Nú er ljóst að Icesave fer fyrir EFTA dómstólinn.  Enginn forseti getur sent þau leiðindi aftur til þjóðarinnar.  Við höfnuðum því og tókum áhættu sem er að skila sér í fjöldamálsókn Evrópuríkja gegn okkur.  Blöffið okkar tókst ekki og nú fáum við sko að borga brúsann og það duglega.

Hvað Evrópusambandið varðar þá stendur svart á hvítu að þjóðaratkvæðagreiðsla muni fara fram um samninginn sem okkur býðst.  Þurfum engan Ólaf Ragnar til að baktryggja það.  Og ef illa fer þá gerum við bara allt vitlaust með búsáhöldum.

Auk þess eru góðar líkur á að viðræðum verði bráðlega slitið eða slegið á frest vegna gremju Vinstri-Grænna með þátttöku ESB í málsókn EFTA gegn okkur.  Góðar líkur eru á að hrútleiðinleg kommastjórnin springi loks í loft upp.

Exorcist

Var við það að fríka út í Bónus í gær.  Móðir með ofurofvirkan dreng í eftirdragi var á undan mér.  Get svarið það.  Drengurinn var sem andsetinn.  Ég íhugaði á tímabili að hringja í særingarmann.

Hafði svo vit á því að fara í gagnstæða átt.  Greyið mamman!  Vantaði bara að drengurinn sveiflaði sér veggja á milli.  Sá aðra karlmenn svitna við að líta drenginn augum.  Dáist að þolinmæði kvenna.