Frú forseti

Alls kyns vitleysingar hafa verið nefndir sem næsti forseti landsins.  Ástþór Magnússon hefur gefið sig fram í þriðja sinn.  Ólafur Ragnar forseti fer fram í fimmta sinn.  Sem eru mistök hjá honum.  Hefði betur hætt með sín sextán ár að baki í staðinn fyrir að fara í þann slag sem er fyrir höndum.

Persónulega lýst mér best á Þóru Arnórsdóttur fjölmiðakonu.  Eða Gerði Kristný rithöfund.  Nóg komið af gömlum stjórnmálapungum á forsetastóli.

Lítilmenni

Karlmenn sem hata konur telja sig vera að missa einhver völd með því að taka undir málstað femínista um kúgun karla á konum.  Að þeir verði undir og konurnar sigri. Virkilega sorglegir menn.

Svona vesalingar nýta hvert tækifæri til að niðurlægja konur.  Varð vitni að slíku sem næturvaktstjóri á bensínstöð.  Stelpur sem ég vann með komu oftar en einu sinni til mín með tárin í augunum því einhver auminginn hafði nauðgað þeim með sinni eitruðu tungu.

Höfðum fyrir reglu að þegar þessir ræflar ráku aftur inn fésin, þá var kallað á mig til að afgreiða þá.  Voru ekki eins borubrattir við mig.  Enda aumingjar sem þorðu ekki að níða kynbræður sína.  Voru virkilega karlar sem hata konur.  Lítilmenni og réttdræpir samkvæmt því.

Gamalmennið

Verð bráðum þrjátíu og níu ára gamall.  Samt heilsa ég alltaf sama unglingnum í speglinum á morgnana.  Að vísu aðeins búlduleitari og með færri og grárri hár í vöngum.  Foreldrar mínir eignuðust öll sín fjögur börn fyrir þrítugt.  Ég er að verða fertugur og er enn barnlaus.

Er reyndar líka allslaus og án atvinnu.  Sem er kannski snilld.  Til hvers að eiga hlut í einhverju sem bankinn mun hirða af manni í næsta hruni.  Þá er nú betra að leigja húsnæði og eiga enga bifreið.  Og festa mér fullt starf því annars fæ ég minna í vasann en núna.