Bekkirnir í bænum

Hlunkur eins og ég er virkilega þakklátur bænum fyrir að dreifa fleiri bekkjum um göngustíga bæjarins.  Nú get  ég loks hvílt minn feita rass með reglulegu millibili án þess að fá hjartaáfall.

Skemmtilegast finnst mér að fylgjast með bílstjórunum sem bruna framhjá og snúa sig úr hálslið um leið.  Hafa greinilega aldrei áður séð neinn sitja á bekk.  Stundum gengur fólk framhjá og lítur á mig með fyrirlitningu.  Rétt eins og ég megi ekki tylla mér á bekkinn því ég er svo akfeitur og ljótur.

Bíð spenntur eftir að einhver biðji mig um að yfirgefa bekk.  Þá verður framið morð!

Lögreglan í landinu

Rosalega verð ég alltaf vonlítill þegar ég sé karldurginn sem er yfir kynferðisbrotadeild lögreglunnar tjá sig önugur við fjölmiðla.  Sami gaur og fékk áminningu fyrir að gaspra að konur sem klæddu sig glannalega væru að bjóða upp á vandræði.

Framsækinn lögreglustjóri myndi stugga þessari risaeðlu til hliðar og ráða kvenskörung í starfið.  Hvaða rugl er þetta, að láta miðaldra karl sem telur að konur kalli yfir sig ofbeldi með klæðnaði og hegðun, stjórna þessum viðkvæma málaflokki?

Ætli að það tíðkist enn að yfirmenn hjá lögreglunni verði að bera flokksskírteini frá Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokknum upp á vasann?  Frægt er orðið að pabbi borgarstjóra fékk aldrei stöðuhækkun vegna þess að hann kaus Alþýðubandalagið.

Enn eitt dæmið um að við virðumst ekki ætla að komast upp úr gömlu hjólförunum sem við vorum að hjakka í fyrir hrun.  Ekkert virðist ætla að færast fram á við.  Ekki einu sinni lögreglan í landinu.

Farið út af sporinu

Fékk skít og skammir framan í mig í síðustu heimsókn minni til hjúkku og læknis.  Hótuðu mér með insúlíni ef ég tæki mig ekki virkilega á næstu tvo mánuði.  Hjúkkan spurði mig hvað ég ætlaði að gera til að bæta ástandið og ég svaraði auðvitað „sennilega ekkert“.  Játaði einnig að hata nálar svo insúlín kæmi ekki heldur til greina.

Vissulega hef ég misst mig síðustu misseri.  Borðað allt of mikið af sælgæti.  Ég á reyndar að láta það alveg í friði.  Kemur mér í koll núna.  Helvítis nartþörfin lætur á sér bera þegar skyggja tekur.  Get vel sleppt sætindunum.  En hvað gerist ef það dugir ekki til?