Afmynduð framtíð

Hef aldrei verið neinn risi.  Rétt undir einum og áttatíu og bara nokkuð sáttur með það.  Slepp vonandi þannig við bakverkina sem framhaldsskólaslánar samtímans munu þjást af seinna meir í lífi sínu.

Stóð við hliðina á nokkrum þeirra um daginn á biðstöð eftir strætó.  Þetta eru vansköpuð kvikindi.  Ekkert nema langar lappir og hendur á horuðum búk.  Þá vil ég nú frekar vera þrekinn og samsvara mér.  Sem ég myndi gera ef ég væri ekki orðinn svona helvíti feitur.

Gruna að okkur hafi ekki verið ætlað að verða slánavaxin.  Eitthvað hefur breyst.  Vissulega mataræðið en eflaust líka vinnuuppeldið.  Þessi krakkakvikindi erfiða ekkert lengur.  Má ekkert reyna á þau án þess að fá kæru.  Þau fá flest bómullarhnoðra til að búa í fram á fullorðinsár.  Svo tekur örorkan við.

Háskólakennarar kvarta réttilega yfir tilætlunarsemi stúdenta sem heimta tilbúnar glærur á tölvuformi fyrir tímana. Þau nenna ekki að leggja á sig að taka niður glósur.  Því þá neyðast þau til að mæta í tíma.  Slíkt gæti truflað þau við að sofa fram eftir og lengjast enn frekar fram yfir rúmgaflinn.

26. greinin mun sigra

Ólafur Ragnar konungur yfir Íslandi þykist hafa verið skýr í upphafi árs með að hann ætlaði ekki frekar að gegna embætti forseta.  Hann var þá einn um þann skilning því við hin vorum engan veginn viss.  Nú vill hann fá nokkra daga í viðbót til að hugsa málið í kjölfar hvatningar í formi undirskrifta þrjátíu þúsund einstaklinga.

Eiríkur Stefánsson af Útvarp Sögu flutti hvatningargjörð í anda þeirrar sem FDR fékk árið 1944 þegar hann var hættur sem forseti Bandaríkjanna þreyttur lífsdaga.  Sá kvaddi lífið ári seinna rétt fyrir uppgjöf Þjóðverja eftir að hafa haldið áfram gegn eigin vilja.

Vill fólk að Ólafur deyji í embætti?  Leyfum manninum að njóta efri áranna með fjölskyldu sinni.  Hann hlýtur að vera búinn að skila sínu verki til samfélagsins.  Nú verður yngra fólk bara að gefa sig fram og taka við keflinu.  Sú eða sá sem heitir að beita áfram 26. grein stjórnarskrárinnar mun sigra.

Sér grefur gröf

Fór yfir það um daginn í huga mínum hve oft ég hefði verið veikur og forfallast frá vinnu eða skóla.  Niðurstaðan vakti í senn með mér hroll og gleði.  Málið er að ég hef voða sjaldan orðið fórnarlamb umgangspesta.  Bara verið nokkuð heppinn.

Sem krakki var ég sjaldan lasinn.  Og í þau fáu skipti var ég samt sendur í skólann því að hitinn hækkaði lítið sem ekkert.  Mamma hélt að ég væri að þykjast.  Mátti gera mér að góðu að hanga slappur í skólanum.

Flest mín forföll eftir tvítugt frá vinnu og skóla voru vegna drykkju eða leti.  Einfaldlega.  En ekki lengur.  Er orðinn svo gamall og þroskaður.  Hef loksins lært mína lexíu.