Köld eru kvennaráð

Oddviti Kópavogslistans sem gerði kröfu um ópólítískan bæjarstjóra er nú komin í eina sæng með gamla sukkinu sem stjórnaði bænum síðustu tvo áratugi.  Pólítískur oddviti íhaldsins er orðinn bæjarstjóri.  Til hamingju!

Svo er Hjálmar Hjálmarsson ekkifréttamaður að væla að hann nenni ekki að tilheyra neinum meirihluta.  Vill hann þá ekki bara segja af sér og hleypa varamanni sínum að?  Hér er þörf á dugandi fólki sem nennir að vinna!

Oddvita Samfylkingar er legið á hálsi að vera valdasjúk og stjórnsöm.  Bara af því að hún er kona.  Væri hún karl myndu allir hrósa henni og telja hana metnaðargjarna.  Ákveðni er sama og frekja þegar konur eiga í hlut…í augum karlrembusvína og gamalla kerlinga sem enn kjósa íhaldið.

Lúsiferstjórn Íslands

Megas fær stórt prik frá mér fyrir að hafa hafnað heiðursverðlaununum á sínum tíma vegna þess að hann gat ekki hugsað sér að taka í spaðann á Finni Ingólfssyni þáverandi ráðherra Framsóknar.  Vildi ekki þurfa að snerta gaurinn.

Djöfull skil ég hann vel.  Finnur er nefnilega einn af umboðsmönnum Andskotans og skammast sín ekkert fyrir það.  Reyndar er allur fjórflokkurinn meira og minna á mála hjá Djöflinum í von um nógu þægileg sæti.

Skiptir litlu hvernig stjórnin er samansett.  Almenningur tapar og hinir ríku græða.  Same old stuff!  Ný framboð ganga um síðir inn í fjórflokkinn og heimta sitt.  Íslenskt lýðræði er löngu dautt!

Borgarfulltrúar

Grunnskólum Reykjavíkur var beyglað saman í hagræðingarskyni af kjörnum fulltrúum sem svo verðlaunuðu sig með vikuferð til New York á Biophiliatónleika Bjarkar Guðmundsdóttur.  Allt á kostnað borgarinnar.  Auðvitað!  Hvað er ein komma fjórar milljónir á milli þriggja einstaklinga.  Sú fjórða greiddi víst sjálf sinn farseðil.

Gat þetta lið ekki dröslast á eina af sex tónleikum Bjarkar í Hörpu síðastliðið haust?  Og af hverju þarf borgarsjóður að borga brúsann.  Getur þetta lið ekki látið sér nægja óvissuferð innanlands eins og aumingjarnir sem greiða útsvarið?

Afsökunin var sú að þetta væri fyrsta ferðin á kjörtímabilinu sem er ekki einu sinni hálfnað.  Mega borgarbúar þá búast við annari ferð áður en því lýkur?  Landið er á kúpunni og þetta pakk leyfir sér svona lúxus og sjálftöku úr sameiginlegum sjóðum borgarinnar.  Hvað varð um „að allir yrðu að færa fórnir.“

Svo dirfist þið að kalla ykkur jafnaðarmenn.  Skammist ykkar!!!