Svarti listinn

Fokk!  Svarti listinn hennar Hildar er horfinn af Facebook.  Vildi sjá hvort ég hefði náð inn á hann.  Efast samt um það.  Komst þó sennilega nálægt því þegar ég var að hugsa um að bera í bætifláka fyrir Jón Baldvin kratakóng.  Ég hætti sem betur fer við það.  Enda maðurinn augljóslega vaðandi barnaperri.

Karlrembusvín og kvenhatarar gleyma að netvædd orð þeirra segja svo margt um þá sjálfa.  Sennilega er þeim skítsama og líður bara skrambi vel í eigin orðræpu.  Sælir eru fattlausir því þeir vita ekki hvað þeir eru vitlausir.

Þvílíkar hetjur!

Ég velti fyrir mér.  Eru verktakarnir aftur komnir á kreik niður í 101 Reykjavík?  Farnir að bjóða í íbúðir og hús til niðurrifs svo byggja megi stærra og hærra.  Hávær orðrómur gekk um fyrir hrun að gerðir hafi verið út hópar útlendinga sem hópnauðguðu konum í húsasundum til að vekja ótta meðal íbúa sem vildu ekki selja.  Eru þessir hópar komnir aftur á kreik?

Stúlku var nauðgað niður í bæ af hópi manna í dimmu húsasundi.  Þvílíkar hetjur.  Hljóta að hafa verið svo stoltir af sjálfum sér þegar þeir vöknuðu í morgun.  Eiga síðan eftir að grínast með sálarmorðið næst þegar þeir fara saman á djammið.  Þessir óþverrar verða að nást og fá almennilegan dóm.

Persónulega finnst mér að ætti að gelda þá og birta myndir af þeim í fjölmiðlum eftir að dómur er fallinn.  Ölvun er engin afsökun.  Hópþrýstingur ekki heldur.  Vonandi rotna þeir í Helvíti.

Við sleppum aldrei!

Olíuverð hækkar frá degi til dags og eina svar stjórnvalda er að ríkið verði að fá tekjur á móti ef lækka eigi gjöld á bensínlítranum.  Ég spái að með síminnkandi umferð muni ríkið setja sérstaka skatta á strætófargjöld, reiðhjól og gönguskó.  Við sleppum aldrei!