Skriftir eru varasamar

Hef ekki lesið Nýtt Líf en það er víst uppselt hjá útgefanda.  Fyrstu viðbrögð mín voru að nú væri hengingarhópurinn kominn af stað enn á ný.  Nú skyldi taka einhvern þekktan af lífi með því að grafa upp gömul bréf og túlka þau frjálslega.

Svo fór ég að pæla.  Af hverju var maðurinn að lýsa kynlífi þeirra hjóna?  Af hverju sendi hann bréf til stelpunnar í gegnum Melaskóla og svo seinna sem sendiherra í Washington?  Kannski vegna þess að foreldrar hennar og systkini máttu ekki sjá, og að diplómatapóst má ekki opna þrátt fyrir grun um eitthvað misjafnt.  Þetta pukur er nú ekki að hjálpa manninum neitt.

Að vísu hefur Jón beðist afsökunar á dómgreindarleysi sínu.  Átti auðvitað ekkert með að skrifa svona til barnungrar frænku konu sinnar.  Hefur sennilega verið kominn í viskíið. Ekki að það sé einhver afsökun.  Gruna þó að þarna búi eitthvað meira á bak við.  Að öll sagan sé ekki sögð.  Bréfin segja samt sína sögu.

Langir hnífar dregnir úr slíðri

Um nornaveiðar.  Nýjasta fórnarlambið er Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins.  Nú á að koma honum út áður en hann nær verulegum árangri.  Dugandi embættismenn eru hiklaust reknir.  Embætti sérstaks saksóknara verður svo umsvifalaust lagt niður þegar Framsóknaríhaldið kemst aftur að völdum.

Geir H. Haarde er allt í einu orðinn fórnarlamb og meirihluti þingheims vill skyndilega hætta við málsókn á hendur honum.  Enda vill spillt þing ekki að vitnisburðir málsins komi undir dagssljós.  Þá mun koma í ljós samkrull stjórnmála og fjármála fyrir og eftir hrun.  Það vill enginn spilltur þingmaður á Nýja Íslandi.

Hinn íslenski Strauss-Kahn?

Sé á dv.is að nú ætli Nýtt Líf að hengja Jón Baldvin Hannibalsson fyrir bréfaskriftir til unglingsstúlku innan fjölskyldu Bryndísar konu hans.  Stúlkan er núna þrítug.

Veit ekkert um málið en sýnist eins og að nú eigi að búa til hinn íslenska Dominic Strauss-Kahn úr Jóni Baldvini.  Við karlmenn erum nefnilega svín!

Tölublaðið kemur reyndar ekki út fyrr en á morgun.  Finnst reyndar skrítið að Jón Baldvin hafi ekki fengið pláss í því til svara ásökunum þeim sem á hann eru bornar.  Einhliða ásakanir eru svo asnalegar þegar viðkomandi er tilbúinn að bregðast við þeim.