Barist við vindmyllur tímans

Að þau skuli nenna þessu!

Netverslun milli landa er lögleg. Netverslun innanlands er lögleg. Gildir einu hvar lagerinn er staðsettur.

Einkaleyfi ríkisins hefur verið andstætt lögum frá aflagningu dönsku einokunarverslunarinnar. Einokun í þágu almannahagsmuna er líka ólögleg. Einokun er ólögleg.

Dröslist inn í samtímann!

Sýndarmennska

Kosningar um áframhald viðræðna við Evrópusambandið eru tóm sýndarmennska. Auðvitað kýs meirihluti þjóðarinnar gegn því því fólk er fífl sem leitar þar sem klárinn er kvaldastur.

Borgarlína er tóm sýndarmennska barin saman til að þétta byggð og hækka íbúðarverð fyrir verktaka.

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í léttvínsfylgi en hefur á móti komið fulltrúum sínum fyrir í flest efstu sæti helstu framboða til borgarstjórnar. Hvaða Sjálfstæðisflokk ætlar þú að kjósa?

Regnbogafáninn

Snorri greyið Másson er allur í hnút yfir litagleði grunnskólanna og skilning þeirra á regnboga mannlífsins. Innan höfuðkúpu Snorra rúmast neflilega bara tvö kyn og kynhneigðir. Allt annað er vók.

Þetta er sem sagt aðalmál Miðflokksins ásamt haturs á innflytjendum.