Sturtuverðir

Eitthvað hefur nú breyst síðan ég fór í skólasundið forðum daga í sundlaug Kópavogs á Kársnesinu. Yfir okkur hékk samkynhneigður vörður á miðjum aldri sem skipaði öllum úr til að þrífa sig fyrir laugina. Á meðan virti hann okkur fyrir sér nakta eins og köttur á kanarífugla og sleikti út um.

Nú eru andskotans pervertarnir miðaldra feður sem laumast inn í kvennaklefana í Sundhöllinni í Reykjavík og komast upp með það að runka sér yfir barnungar unglingsstúlkur meðan starfsfólkið gerir ekkert í málunum. Augljóslega þeim sjálfum um að kenna fyrir að vera naktar til að byrja með.

Allt öðrum að kenna!

Slæddist inn á mathöll í gær eftir vinnu og renndi niður ljúffengum borgara og frönskum. Skammt frá mér sat ungur maður grenjandi á trúnó í símann við ölvaða móður sína og ættingja fyrir norðan.

Hafði fallið á edrúmennskunni í gær og verið handtekinn af lögreglunni sem myrti föður hans fyrir sex árum síðan. Sama föður og reyndi að drekkja honum sex ára gömlum. Mamma hans hafði hent honum út tíu ára gömlum. Ættingjar fyrir norðan höfðu reynst honum vel.

Um tíma hafði allt gengið vel. Var orðinn edrú í námi. Missti svo flugið þegar kærastan sagði honum upp. Sat núna og teygði hvern bjórinn af fætur öðrum í sveittri mathöll.

Og allt var öllum öðrum um að kenna!

Strákurinn í Hafnarfirði

Auminginn sem nauðgaði 10 ára strák er laus úr haldi eftir þriggja mánaða gæsluvarðhald. Greinilega í flokknum með get free out of jail kort heftað fast við flokksskírteinið sitt.

Nú verða drengurinn og foreldrar hans að búast við annarri heimsókn frá honum þegar hann dettur í það um helgina. Að konan hans skuli taka við honum aftur er óhugsanlegt.