#metoo er búið spil!

Gylfi er kominn til Lyngby eftir tveggja ára hlé frá tuðrusparki í kjölfar ásakana í Englandi um kynferðisbrot gegn einstaklingi undir lögaldri. Sögusagnir segja að hann hafi misstigið sig og stungið stúf í stúlkukind undir lögaldri sem hékk á honum breimandi. Albanska mafían hafi svo komist á snoðir um málið en ekki tekist að kúga hann gegn þagnargjaldi. Þar með hafi faðir stúlkunnar komist á snoðir um málið og Gylfi verið kærður. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Sem sagt framhjáhald með einstaklingi undir lögaldri. Málsmeðferðin tók náttúrulega allt of langan tíma.

Ingó veðurguð er kominn aftur á ról eftir uppselda tónleika í Háskólabíó fyrr á árinu og gigg hér og þar síðan. Lék meira að segja í Eyjum um verslunarmannahelgina í Kúluhúsinu hvar fjólublátt ljós við súlnabarinn er nú statt. Engin slaufun lengur í gangi þar. Getur haldið áfram að hanga fyrir utan gagnfræðaskólaböll ef honum sýnist svo. Fær samt sennilega ekki að spila þar í bráð.

Auðunn (Auður) er að gera það gott í henni Ameríku. Sölvi Tryggvason er kominn á ról og í samband með innanhússhönnuðargyðju frá Afríku. Vefjugaurinn er í góðum málum. Logi Bergmann er enn vel kvæntur. Og svo framvegis og framvegis.

Hvaða slaufun er verið að tala um? Hér fær dónaskapurinn að leika lausum hala á nýjan leik og Öfgar geta ekkert gert í því.

Leið 14

Hristist heim með leið 14 af Grensásvegi. Tvær fjórtán tipluðu inn stuttu seinna án þess að greiða fargjald. Bílstjórinn æpir á eftir þeim að þær séu ekki ellefu ára og þurfi að greiða. Þær þykjast ekkert skilja og tala bara arabísku.

Vagninn ekki á leiðinni neitt og komin upp pattstaða. Bilstjórinn á leiðinni til þeirra til að fleygja þeim út. Þær haggast ekki heldur veifa gaur í gegnum gluggann og biðja hann um að greiða fyrir sig. Sem hann og gerir. Meiri vitleysan!

Svona svipaðar og íslensku gelgjurnar sem ruddust fram fyrir alla í sjálfsafgreiðsluröðinni í Krónunni um daginn. Laumuðu sér tvær framhjá og stilltu sér fyrir aftan konu sem var að klára. Glottu á meðan framan í okkur eins og til að segja „hvað þykist þið ætla að gera sem eruð svo vitlaus að bíða í röð!“ Fremstur ég hristi bara hausinn framan í þær en langaði helst til að elta þær út úr búðinni og æpa á þær. Krakkakjánar að kanna mörkin.

Okkar ylhýra

Gerir það mig að þjóðernissinna að neita að tala ensku í verslunum og á veitingahúsum hérlendis? Dettur ekki í hug að grípa til enskunnar þegar ég er að panta mér mat. Hvort heldur sem er á skyndibitastað eða veitingahúsi.

Við tölum íslensku og eigum ekki gefa neinn afslátt þó við séum fáeinar hræður. Ekki gera aðrar þjóðir slíkt.