Munurinn er of mikill í öllum kjördæmum til að hægt sé að púlla Borgarnes 2021 aftur. Halla Tómasdóttir er réttkjörinn 7. forseti íslenska lýðveldisins.
Til hamingju frú forseti!
Munurinn er of mikill í öllum kjördæmum til að hægt sé að púlla Borgarnes 2021 aftur. Halla Tómasdóttir er réttkjörinn 7. forseti íslenska lýðveldisins.
Til hamingju frú forseti!
Allir fjölmiðlar gasprandi hve spennandi forsetakosningarnar séu næstkomandi laugardag og mjótt á milli efstu frambjóðenda.
Mig grunar að kjörsókn verði sögulega lág rétt eins og utankjörfundarsóknin sýnir. Fólk gerir bara ráð fyrir að Katrín verði forseti og nenna þessu ekki. Fara bara frekar út úr bænum eða sitja heima yfir grillinu sötrandi léttvín og bjór.
Forsetaembættið er æðsta sendiherrastaða landsins og Guðni og Elíza sinntu því af kostgæfni. Hefði kosið að þau hefðu nennt því fjögur ár í viðbót, en allt í lagi. Lífið heldur áfram. Á auðvitað bara að breyta stjórnarskránni og leggja þessa forneskju niður rétt eins og ÁTVR. Nota peninginn í velferð og heilbrigði.
Blessað Reykjanesið má varla við meiru. Hvað þá Grindavíkin greyið. Að hugsa sér að gamli starfaði þarna og bjó í gamalli verbúð við höfnina fyrir rúmlega tveimur áratugum síðan. Nágrannar hans allir frá Afríku. Hann rasistinn varð á endanum kunningi þeirra og velgjörðarmaður. Hjálpaði þeim við að leysa úr hinum og þessum úrlausnarefnum.
En því miður hafa þessi tíðu gos komið illa við ferðamannaiðnaðinn. Hver vill ferðast til lands með sífelld eldgos. Skemmtiferðaskipin halda þó áfram að koma. Engin gos í Reykjavík. Bara lundabúðir.