Einhver Heimdellingur í stjórn RÚV vill einkavinavæða draslið og Landsvirkjun í leiðinni. Sem sagt koma ríkiseignum í hendur flokksgæðinga fyrir lítið fé og hirða svo gróðann. Rétt eins og Íslandsbanka.
Frekjan í þessu liði er gengdarlaus.
Einhver Heimdellingur í stjórn RÚV vill einkavinavæða draslið og Landsvirkjun í leiðinni. Sem sagt koma ríkiseignum í hendur flokksgæðinga fyrir lítið fé og hirða svo gróðann. Rétt eins og Íslandsbanka.
Frekjan í þessu liði er gengdarlaus.
Eitthvað að rofa til í akstursþjónustumálinu. En þó varla fyrr en í næstu viku. Annars er bara að sníkja far sem er mér þvert um geð eða skakklappast með strætó á hnéhjólinu til vinnu.
Planið er að slökkva á Netflix og halda til vinnu um mánaðarmótin. Er orðinn geðveikari en ég var (sem ég hélt að væri ekki hægt) og hundleiður á þessu hangsi. Hvar stendur að hangs heima lækni nokkuð?
Gerði vísindalega tilraun í dag með því að panta vörur frá Heimkaup án þess að nota hraðþjónustu. Og hvað gerðist! Gaurinn bar allt draslið upp til mín eftir að ég hleypti honum inn með dyrabjöllunni. Ekkert „hurðin er biluð“ kjaftæði og „getur þú komið niður og hleypt mér inn“.
Sex vikur án göngutúra og inniveru taka sinn toll. Allt þol er horfið og ég kemst varla á milli herbergja án þess að standa á öndinni.
Pantaði sitthvað með Heimkaup um helgina því engin sendingargjöld voru í gildi. Eins og síðast þá hringdi sendillinn og sagðist vera fyrir utan. Ég spurði á móti hvort að hurðin virkaði ekki og hann svaraði nei.
Auminginn ég brunaði á hnéhjólinu niður með lyftunni. Á móti mér mættu mæðgur nýkomnar í gegnum útidyrnar með hjálp dyrasímans. Fyrir utan stóð sendillinn. Sem betur fer bauðst gaurinn til að bera pokana með mér upp á þriðju hæð þegar hann sá ástandið á mér og ég þakkaði kærlega fyrir.
Eitthvað er að rofast til í akstursþjónustunni. Kemur í ljós í vikunni. Langar bara svo til að mæta aftur til vinnu. Er að verða geðveikur á Netflix og hangsi heima étandi netpantaðan mat. Þessi fótur er ekkert að fara lagast á nokkrum vikum. Sumar og haust verða undirlögð af heltu og leiðindum.