Auminginn VI

Bjúgur á vinstra auga og þrjár sprautur framundan út sumarið. Kannski einhver geisli þar á eftir. Lesgleraugu með blágeislavörn (skjávörn). Hélt að ég væri í góðum málum og búinn að sigra systkynin í hvenær væri þörf á gleraugum . Er líklega mun blindari en þau og löngu fyrir fimmtugt.

Og er að berjast við svimaköst síðan ég hitti augnlæknirinn. Datt næstum því ofan í salernið um daginn. Ekki gaman. Held að ég sé ekkert að fara að vinna á næstunni.

Ungir menn aftarlega á merinni

Snorri Másson og Patrekur Prettiboitjokko virðast ekkert vera að grínast. Þetta er þeirra heimsmynd. Undirgefnar konur heima með börnin meðan þeir afla tekna fyrir heimilið, því þeir eru karlmenn og því betur til þess búnir að eiga við peninga en konurnar þeirra.

Menn sem gætu verið synir mínir aldurslega séð. Samt svona aftarlega í hugsun. Hvað kom fyrir þá? Ofeldi af hendur móður eða föður? Eða eru kannski bara að stríða til að afla sér athygli?

Auminginn V

Er búinn að mastera að sofa allan daginn og vaka um nætur. Snúa sólarhringnum við og borða einu sinni á dag. Til hvers að hafa ónýtt vinstra auga opið lengur en þarf. Eða ónýtan vinstri fót!

Örorkan er á næsta leyti. Fæ varla að vinna eineygður með einn virkan fót.