Fasteignabrall Borgarlínunnar (flokkanna)

Kjörnir fulltrúar sitja að drykkju og upphugsa næsta gróðabrall. Hvernig getum við þétt byggð, selt það sauðsvörtum almúganum og grætt á öllu saman?

Jú, með hugmyndinni um Borgarlínu sem á að ganga á sjö mínútna fresti. Einmitt!

Byggjum svo háar og ljótar blokkir við væntanlega leið Borgarlínunnar rétt eins og við Suðurlandsbraut og Hamraborg. Seljum þær undir því yfirskini að Borgarlínan sé á leiðinni.

Hættum svo við allt saman þegar þessir steypuklumpar eru risnir og við erum búin að stinga gróðanum undan til Tortola.

Sama hvað við segjum…

um Miðflokkinn. Fólk mun samt kjósa hann til valda í bæjarstjórnum landsins í vor. Og svo til Alþingis í kjölfarið.

Af hverju? Því fólk eru fífl og fávitar upp til hópa. Rétt eins og apaheilarnir handan tjarnarinnar sem kusu appelsínugulan trúð aftur í Hvíta húsið.

Þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur.

Sorglegt

Að Trömpisminn sé að gera sig gildandi á Íslandi í gegnum Miðflokkinn. Að íslensk MAGA-hreyfing sé að afla sér fylgis fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.

Af hverju ætlar fólk að kjósa yfir sig afturhald, kvenhatur, karlrembu, hómófóbíu, útlendingahatur, minni velferð, afturköllun mannréttinda og aðdáun á einhverjum appelsínugulum apa í Hvíta húsinu sem er við dauðans dyr?

Af hverju? – Því fólk er fífl!