Vínbúðunum á að loka vegna þess að…

° Þær eru allt of dýrar í rekstri. Éta upp öll áfengisgjöld og skatta af vörunni.

° Í hverri búð er hópur fólks á launum við að gera ekki neitt nema að hanga í símanum og gantast inn á lager. Jafnvel öryggisvörðurinn er við það að sofna hangandi fram á vöruhillu.

° Í einkarekinni netverslun er einn eða tveir starfsmenn sem redda öllu. Yfirbyggingin lítil sem engin. Með opnunartíma almennra matvöruverslana. Og lægra verð þrátt fyrir stigvaxandi skattpíningu yfirvalda.

° Ríkið er enn kallað „mjólkurbúðin“ af eldri viðskiptavinum, því í gamla daga rak ríkið mjólkurbúðir, raftækjaverslanir, skóbúðir, bílasölur og allan fjandann annan. Eitthvað sem myndi aldrei viðgangast í dag.

° Vínbúðin er síðasti Móhíkaninn. Síðasta ríkisverslunin.

° Verslanir eiga ekki að vera reknar af ríkinu! Síst af öllu í einhverju ímynduðu forvarnarskyni forræðissinna sem vilja banna allt og stjórna fólki.

Krýsuvík

Krýsuvíkursamtökin eru að betla pening til að stækka við sig og bæta sjö rýmum við þau tuttugu og tvö sem fyrir eru. Þetta á að kosta 120 millur og þau vantar 50 til að klára dæmið. Höfða því til hófdrykkjufólks að vera edrú í febrúar og dæla andvirði áfengisins inn á reikninginn þeirra.

Sporin hræða! Saga þessara samtaka er ekki upp á marga fiska. Lágpunkturinn kom árið 2018 þegar dv.is kom upp um allsherjarsukk fjölkskyldu og vina sem ráku dæmið eins og eigin sparibauk. Bónaðir nýir jeppar á hlaðinu og hlaðborð veikra kvenna sem starfsmenn gátu sótt í að vild til að seðja kynferðislega óra sína.

Ætlum við aldrei að læra! Náði umfjöllunin um Bakkakot ekki inn fyrir beinmerginn á hausamótunum okkar?

Hættum þessu einkarekna meðferðarstarfi. Þetta er löngu fullreynt og er bara gróðrastía fyrir sukk, svínarí og misnotkun.