Tilraun til manndráps

Einhver brjálæðingur reyndi að drepa mig síðdegis á föstudaginn í Grafarvoginum af öllum stöðum.

Rúllaði miðlungsstóra sendibílnum sínum á mig þegar ég var gangandi á leið yfir götu. Splæsti á mig flugferð eftir götunni sem kostaði mig sprungna vör, blóðnasir og bólgið nef, sauma í vinstri olnboga og hægra hné, verki um allan skrokkinn ásamt marblettum og rispum.

Sex plús tímar á slysó eftir far þangað í sjúkrabíl. Hópur af atvinnubílstjórum þustu að þar sem ég lá í götunni eins og aumingi eftir morðtilraunina. Tékkuðu á mér og hringdu í 112. Báru mig upp á umferðareyju og létu mig leggjast þar til sjúkrabíllinn kom. Leiðréttu svo ákveðnir árásarmanninn þegar hann sagðist hafa verið í rétti.

Gangandi vegfarandi er ALLTAF í rétti. Þú sem bílstjóri átt engan rétt á að rúlla hann niður. Auk þess var grænn karl hjá mér. Að vísu á grænu beygjuljósi. Hef samt aldrei áður verið ekinn niður á beygjuljósi. Flestir bíða eftir að gangandi eru komnir yfir áður en þeir stíga á bensíngjöfina af krafti eins og þessi andskoti gerði.

Smeygði sér framhjá strætisvagninum sem beið og beygði til hægri á akrein sem er vanalega ætluð umferð beint áfram eða til vinstri. Ég átti mér enga undankomuleið. Bjóst hvorki við honum né sá hann fyrr en hann lenti á mér.

Eins gott a lögreglan kæri hann fyrir umferðarlagabrot. Ég mun kæra hann fyrir manndrápstilraun.

Miðaldra mótþrói gagnvart framtíðinni

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-20-netsala-afengis-opinn-krani-fyrir-born-og-unglinga-476046

Alltaf skulu þetta vera miðaldra menn með mótþróa gagnvart framtíðinni. Skilja ekki að ríkiseinokun á sölu áfengis dugar ekkert lengur sem forvörn fyrir unglinga sem vilja detta í það og drýgja hór á framhaldsskólaböllum. Rétt eins og þeir gerðu sjálfir forðum daga áður en þeir hættu að drekka og ríða og gerðust heilagri en sjálfur páfinn í Róm.

Netverslun hefur tekið yfir hefðbundnar verslanir. Keypti mér hárklippur um daginn og gerði mig að algjöru fífli með því að mæta á staðinn og ætla að grípa umbúðir úr hillu. Þurfti að fara í gegnum starfskonu sem svo sótti gripinn inn á lager. Hefði verið fljótari að ganga frá kaupunum fyrirfram á netinu og svo sækja eins og kúnnarnir á undan mér höfðu vit á að gera. Eða láta senda heim.

Nú hef ég pantað áfengi heim nokkrum sinnum. Sérstaklega þegar ég lá hreyfingarlaus heima og komst ekki út í búð. Ég var ALLTAF beðinn um skilríki þrátt fyrir að vera miðaldra. Fyrir það fyrsta þá getur þú ekki pantað á netinu án rafrænna skilríkja. Sem þýðir að einhver með aldur er að panta fyrir unglingana. Rétt eins og fyrir tíma netsins þegar við báðum einhvern um að grípa flösku fyrir okkur í leiðinni. Oftast voru það miðaldra karlar sem sáu aumur á okkur og vildu ekkert í staðinn. Mundu hvernig var að vera ungur og ör á fleygiferð til fullorðinsáranna.

Berfætt og barnshafandi

JPZ er kallakall.

Og sem kallakall og þingmaður Sjálfgræðgisflokksins, þá veit hann allt bezt.

Veit jafnvel hvað ungum konum er fyrir bestu. Að sleppa helst öllu framapoti og menntun. Verða sem fyrst berfættar og barnshafandi fyrir framan eldavélarnar því þúsund ára náttúruval segir svo til um.

Held að JPZ hafi með þessari færslu á X verið að tilkynna flutning sinn yfir í Miðflokkinn.